Fyrsti dagur sögulegra réttarhalda í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir Landsdómi, hófst í dag.
Málið er með öllu fordæmalaust, en Geir lauk við skýrslutöku sína vegna þeirra fjögurra liða sem eftir standa af ákærunni, eftir frávísun Landsdóms á tveimur liðum.
Annar dagur réttarhaldanna hefst á morgun klukkan 10:00 en þá koma vitni fyrir dóminn, þeir Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri og fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, og Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi formaður stjórnar Seðlabanka Íslands.
Sjá má lýsingu af málsatvikum hér að neðan, en nýjustu færslurnar er efst.
Twitter-lýsing Vísis, dagur 12012-03-05 17:23:04
visir_is: Markús er búinn að slíta dómhaldi. Málið hefst að nýju
klukkan 10:00 í fyrramálið. Fylgist með á Vísi.
2012-03-05 17:21:47
visir_is: Geir: Jú það er rétt, að samskiptin frá minni hálfu voru
fyrst og fremst við formann Samfylkingarinnar um þessi málefni.
2012-03-05 17:19:35
visir_is: Markús spyr: Er það réttur skilningur að þú hafir fyrst og
fremst rætt um málefni bankanna við utanríkisráðherra, formann
Samfylkingarinnar?
2012-03-05 17:18:43
visir_is: Geir: Það hefði verið betra ef Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra hefði verið beinn aðili að ýmsum málum þar sem
hann kom ekki að.
2012-03-05 17:18:05
visir_is: Andri spyr, um samskipti utanríkis- og viðskiptaráðherra, og
síðan samskiptum við Geir.
2012-03-05 17:12:07
visir_is: Enn er spurt um hvernig mál eru bókuð á
ríkisstjórnarfundum. Geir segir ekkert hafa verið athugavert við það
hvernig mál voru bókuð.
2012-03-05 16:58:13
visir_is: Geir: Öllum bókunum á ríkisstjórnarfundum var skilmerkilega
lekið í fjölmiðla, af vissum ráðherrum.
2012-03-05 16:56:39
visir_is: Geir: Viðbrögðin voru afar neikvæð á markaðnum og staðan
versnaði hratt, og það var ekki óeðlilegt að Davíð kæmi til
fundarins.
2012-03-05 16:56:07
visir_is: Geir: Ekkert óeðlilegt við það að seðlabankastjóri hafi
vilja koma og skýra hver viðbrögðin höfðu verið við lánveitingu
til Glitnis.
2012-03-05 16:55:36
visir_is: Geir: Óeðlilegt hvernig sumir ráðherrar lásu í þá
"heimsókn" þegar Davíð kom á fund ríkisstjórnarinnar, þar sem
þjóðstjórn bar á góma.
2012-03-05 16:50:49
visir_is: Geir: Ég miðlaði upplýsingum til ráðherra og
stjórnarandstöðu eftir því sem þörf var á.
2012-03-05 16:43:39
visir_is: Geir segir minnisblað um ímynd Íslands ekki koma málinu neitt
við, og því sé óþarfi að ræða það, en Sigríður hafði gert
það að umtalsefni.
2012-03-05 16:39:15
visir_is: Sigríður hefur spurt töluvert út í frágang á fundargerðum
ríkisstjórnarinnar. Hvort þarf hafi allt verið rætt til bókar sem
rætt var.
2012-03-05 08:05:50
visir_is: Vísir.is er mættur á vettvang í Þjóðmenningarhúsinu,
fyrstur allra raunar. Hér er allt til reiðu fyrir upphaf
Landsdómsmálsins.
2012-03-05 16:37:32
visir_is: Geir: Drög að fundargerðum eru í sjálfu sér engin marktæk
gögn, því þau hætt að vera "til" þegar fundargerðir hafa verið
kláraðar.
2012-03-05 16:34:34
visir_is: Fróðleiksmoli: Í þessum ákærulið, það er nr. 2, er
einkum horft til þess hvort formreglum hafi verið fylgt við skráningu
á fundarefnum.
2012-03-05 16:31:45
visir_is: Sigríður: Voru öll mál sem til umræðu voru á fundum,
bókuð í fundargerðum? Geir; Nei, ekki alltaf, en yfirleitt.
2012-03-05 16:28:16
visir_is: Geir: Hver ríkisstjórn setur sér verklagsreglur þegar kemur
að fundargerðum um og umfjöllun um efnisatriði mála.
2012-03-05 16:18:19
visir_is: Nú hefst umræða um ákærulið 2, það er seinni lið
ákærunnar. Sjá má hana
hér.http://www.sakal.is/media/skjol/Akaera-10.5.2011.pdf #landsdómur
2012-03-05 16:16:42
visir_is: Geir: Nei, Davíð gerði það ekki. En þetta var í takt við
okkar afstöðu, þ.e. að ríkið bæri ekki ábyrgð á Tryggingasjóði
innstæðueigenda.
2012-03-05 16:16:09
visir_is: Markús spyr hvort Davíð Oddsson hafi haft samráð við Geir,
þegar hann sagði breska fjármálaeftirlitinu að ríkið bæri ekki
ábyrgð á Icesave.
2012-03-05 16:13:38
visir_is: Geir segist ekki vilja túlka skoðanir annarra, en það hafi
uppi ólíkar skoðanir á þessum málum.
2012-03-05 16:12:21
visir_is: Markús spyr áfram um ríkisábyrgð á Icesave, og hvort það
hafi verið deildar meiningar um þetta hjá ráðherrum í
ríkisstjórninni.
2012-03-05 16:10:09
visir_is: Markús spyr um umræðu í samráðshópi stjórnvalda um
fjármálastöðugleika, um ábyrgð á Tryggingasjóði innstæðueigenda.
2012-03-05 16:09:16
visir_is: Geir: Nei, ég hafði engin tök á því, enda bendir margt til
þess að ógerlegt hafi verið að uppfylla skilyrði breska
fjármálaeftirlitsins.
2012-03-05 16:08:37
visir_is: Andri: Gast þú "með einhverjum töfrasprota" leyst úr þessum
tæknilegu erfiðleikum sem voru fyrir í Icesave-málinu?
2012-03-05 16:02:26
visir_is: Geir:Hugsanlegt að breska fjármálaeftirlitið hafi ekki
viljað flutning á Icesave í dótturfélag, þar sem skuldbindingin
hefði færst til Breta
2012-03-05 16:00:47
visir_is: Geir: Ég var upplýstur um gang mála í Icesave-deilunum af
seðlabankanum og ráðuneytisstjórum fjármála- og forsætisráðuneyti.
2012-03-05 15:57:56
visir_is: Geir: Ég tel að allt hafi verið gert til þess að leysa þau
vandamál sem blöstu við. Fjármálaeftirlitið og
viðskiptaráðuneytið reyndu sitt.
2012-03-05 15:51:16
visir_is: Geir: "Ef að Lehman hefði ekki fallið, þá hefði hugsanlega
verið hægt að færa Icesave inn í dótturfélag. En við fáum aldrei
svar við því".
2012-03-05 15:50:28
visir_is: Geir: Í september 2008 héldum við að þetta væri málið
væri að leysast, en svo kom í ljós að bankinn gat ekki uppfyllt
þetta, hann féll.
2012-03-05 15:48:57
visir_is: Geir: Það sem blasti við voru strangar kröfur. Með öðrum
orðum; hingað og ekki lengra, þetta eru okkar skilyrði, þið verðið
að uppfylla þau.
2012-03-05 15:48:08
visir_is: Geir: Ég fékk bréf boðsent á Þingvelli þar sem ég var
staddur, í ágúst 2008, sem var frá breska fjármálaeftirlitinu til
Landsbankans.
2012-03-05 15:47:20
visir_is: Geir: Ég vissi hver heildarmyndin var, og fékk upplýsingar um
deilurnar sem stóðu frá apríl mánuði og fram á haustið.
2012-03-05 15:45:53
visir_is: Sigríður: Vissir þú nákvæmlega hver voru efnisatriði
deilunnar milli breska fjármálaeftirlitsins og Landsbankans vegna
Icesave?
2012-03-05 15:40:41
visir_is: Geir: Með öðrum orðum, þá var Fjármálaeftirlitið í
Bretland að setja fram ríkari kröfur, í tengslum við Icesave, en lög
sögðu til um.
2012-03-05 15:39:17
visir_is: ...Geir: Fjármálaeftirlitið breska sagði þá við
stjórnendur Landsbankans; fariði þá bara í mál við okkur!
#landsdómur
2012-03-05 15:38:25
visir_is: Geir: Fjármálaeftirltið í Bretlandi var að brjóta gegn
Landsbankanum, það gerði of miklar kröfur, að mati stjórnenda
Landsbankans.
2012-03-05 15:37:44
visir_is: Sigríður spyr Geir, hvort hann hafi séð gögn um afleita
stöðu Landsbankans, og þá hvort bankinn hefði eignir á móti
Icesaveskuldum.
2012-03-05 15:28:40
visir_is: Geir: Við pössuðum okkur á því að svara bréfum með þeim
hætti, að engar skuldbindingar umfram okkar mat, væru skjalfestar.
2012-03-05 15:26:26
visir_is: Geir: Við sögðumst standa við það sem tilskipanir segðu
til. Ekkert meira en það, og tjónið átti ekki að lenda á
skattgreiðendum.
2012-03-05 15:23:17
visir_is: Ráðgjafar Geirs í þessu máli, voru Baldur Guðlaugsson,
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, og Bolli Þór Bollason,
ráðuneytisstjóri Geirs
2012-03-05 15:19:31
visir_is: Geir: Afskipti mín af því hvort Icesave ætti að vera í
dótturfélagi í Bretlandi eða hefðu engu breytt, og hefðu verið úr
takti við málið.
2012-03-05 15:16:45
visir_is: Geir: Svaið er nei, segir Geir. Ríkið ber ekki ábyrgð á
Tryggingasjóði innstæðueigenda.
2012-03-05 15:15:57
visir_is: Geir: Ber ríkið einhverja ábyrgð á Tryggingasjóði
innstæðueigenda?
2012-03-05 15:15:20
visir_is: Réttarhaldið heldur nú áfram. Geir er nú að tala um
Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta, og stöðu hans árið
2008.
2012-03-05 15:10:18
visir_is: Andri, sem er lögmaður Geirs, vann einnig úttektir fyrir
stjórn Fjármálaeftirlitsins á hæfi Gunnars Andersen, sem nú hefur
verið rekinn.
2012-03-05 15:08:18
visir_is: Fróðleiksmoli: Andrí Árnason hrl. er lögmaður Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra í máli hans gegn seðlabankanum vegna
launamála.
2012-03-05 15:01:44
visir_is: Það er nú fimmtán mínútna hlé á réttarhaldinu. Til
umræðu hefur verið ákæruliður 1,5 er varðar Icesave starfsemi
Landsbankans.
2012-03-05 14:53:15
visir_is: Geir: Ég gat engu við það bætt, sem þegar var komið fram,
og hafði ekki tök á því að stuðla að færslu á þessari starfsemi
í dótturfélag.
2012-03-05 14:49:07
visir_is: ... Geir: Landsbankinn þyrfti að leggja fram eignir sem hann
ekki voru fyrir hendi.
2012-03-05 14:48:23
visir_is: Geir: Kröfur Bretanna urðu sífellt meiri, eftir því sem
leið á árið 2008. Það er að Landsbankinn þyrfti að leggja fram
eignir.
2012-03-05 14:46:47
visir_is: Geir: Það var fylgst vel með þessu máli allan tímann, og
Fjármálaeftirlitið sinnti þessu.
2012-03-05 14:45:55
visir_is: Ákæruliður 1,5 snýr að því, að ekki hafi verið þrýst
á um að koma Icesave starsfeminni inn í sérstakt dótturfélag
Landsbankans.
2012-03-05 14:42:34
visir_is: Hefst þá skýrslutaka vegna síðasta ákæruliðarins, 1,5.
Hér má sjá ákæruna. http://t.co/kl62ewNq #landsdómur
2012-03-05 14:41:02
visir_is: Geir: Nei, ég hafði engar upplýsingar, hinsvegar blasir við
að þær voru ótraustri en eftirlitsstofnanir virðast hafa gert sér
grein fyrir.
2012-03-05 14:40:04
visir_is: Andri Árnason spyr: Lánalínur bankanna virðast hafa verið
ótraustari en gert var ráð fyrir. Fékkst þú einhverjar upplýsingar
um þetta?
2012-03-05 14:37:54
visir_is: Geir: Eftir á að hyggja þá hefði það verið það eina
rétta, þ.e. að takmarka innlánssöfnunina í Hollandi.
2012-03-05 14:36:56
visir_is: Geir: Ég veit ekkert af hverju Fjármálaeftirlitið gerði
ekkert í því að, hindra Icesave-innlánasöfnun Landsbankans í
Hollandi.
2012-03-05 14:34:04
visir_is: Geir: Það er að ábyrgð fylgi aðgerðum, eins og raunin
varð. Það er að skuldsetja ríkissjóð ekki um of, og reyna að bjarga
fjármálakerfinu.
2012-03-05 14:32:30
visir_is: Markús spyr, út í yfirlýsingar Geirs um að stjórnvöld muni
grípa til ábyrgra aðgerða, eins og "stjórnvöld víðast hvar annars
staðar"?
2012-03-05 14:28:52
visir_is: Geir: Seðlabankinn sagði viðskiptabankanna standa vel 19.
september 2008.
2012-03-05 14:24:16
visir_is: Geir: Bankarnir gerðu alltaf ráð fyrir því að
endurfjármögnun væri möguleiki, við allar aðstæður.
2012-03-05 14:23:44
visir_is: Geir: Gjalddagar bankanna voru þekktir, og vitneskjan lá fyrir
opinberlega.
2012-03-05 14:22:48
visir_is: Markús segir ýmis innanhúsgögn úr seðlabankanum draga upp
"svarta" mynd af stöðu fjármálakerfisins. Hvernig voru umræður um
þetta?
2012-03-05 14:20:36
visir_is: Markús les upp minnisblað frá Tryggva frá janúarmánuði
2008, þar sem segir að ef lánsfjármarkaðir opnist ekki, þá blasi
við "hryllingsmynd".
2012-03-05 14:19:44
visir_is: Markús spyr um innanhúsplögg í seðlabankanum, þar sem rætt
er um erfiða stöðu bankanna. Vitnar til minnisblaða Tryggva Pálssonar.
2012-03-05 14:14:30
visir_is: Geir: Ýmislegt rætt en það náði því aldrei að komast á
alvarlegt stig, til þess að teljast raunhæfur möguleiki. #landsdómur
2012-03-05 14:12:35
visir_is: Andri Árnason spyr Geir hvaða sameiningarmöguleikar voru fyrir
hendi á árinu 2008.
2012-03-05 14:11:55
visir_is: Geir: Ég fékk upplýsingar um það já, margsinnis. Allir sem
þekkja lánasamninga banka vita að eignasala getur haft neikvæð áhrif.
2012-03-05 14:10:49
visir_is: Andri Árnason spyr út í lánasamninga bankanna, og þá hvort
Geir hafi vitað af því að eignasalan myndi brjóta gegn
lánaskilmálum.
2012-03-05 14:09:34
visir_is: Geir: Mér var kunnugt um það, að bankarnir hafi reynt að
taka lán með ákveðnar eignir að veði, vegna þess að eignasala var
ótækur kostur.
2012-03-05 14:08:04
visir_is: Geir: Bankamennirnir vissu hvað þyrfti að gera, til þess að
draga úr áhættu, en það voru miklar takmarkanir á því öllu.
2012-03-05 14:04:05
visir_is: Fróðleiksmoli: Mikið púður fer í það, að fjalla um hvort
það hafi verið raunverulega hægt að minnka bankakerfið 2008.
2012-03-05 14:02:05
visir_is: Geir: Eins og ég hef áður lýst, þá var það því miður
miklum vandkvæðum bundið að minnka bankakerfið 2008, og líklega ekki
hægt.
2012-03-05 14:01:12
visir_is: Andri heldur áfram að spyrja út í hvernig aðstæður hefðu
verið fyrir sölu á eignum bankanna.
2012-03-05 13:59:35
visir_is: Andri spyr hvort hann hafi fengið einhverja formlega kynningu á
þessari skýrslu? Nei, segir Geir.
2012-03-05 13:58:56
visir_is: Andri Árnason spyr út í skýrslu sem Buiter og Sibert unnu
fyrir Landsbankann, frá vormánuðum 2008, um stöðu íslenska
bankakerfsins.
2012-03-05 13:55:56
visir_is: Geir: Markaðsaðstæður voru þannig að það var ekki hægt
að selja eignir öðruvísi en að grafa um leið undan kerfinu.
2012-03-05 13:54:10
visir_is: Geir: Hvað sem má segja um bankamennina, þá held ég að
þeir hafi verið að reyna að selja eignir og draga úr áhættu, en
það var ekki hægt.
2012-03-05 13:53:36
visir_is: Geir: Það var rætt um ýmislegt, en það var nánast
ómögulegt að selja eignir.
2012-03-05 13:52:42
visir_is: Andri Árnason spyr út í hvort Geir hafi átt samtöl við
Sigurjón Árnason um sölu á eignum.
2012-03-05 13:50:33
visir_is: Geir: Ég vissi af því að eignir Glitnis í Noregi, voru til
sölu og kaupendur áhugasamir, en það var að erfitt að selja á nógu
góðu verði.
2012-03-05 13:49:23
visir_is: Andri Árnason spyr: Var mögulegt að selja tilteknar eignir á
árinu 2008 og þá hvaða eignir?
2012-03-05 13:47:35
visir_is: Geir: Ekki beint þannig að ég muni eftir sérstaklega.
2012-03-05 13:47:12
visir_is: Markús spyr: Fékkstu upplýsingar um þessa afstöðu
hollenskra yfirvalda vegna Icesave innlánasöfnunarinnar frá
samráðshópnum?
2012-03-05 13:44:48
visir_is: Geir: Það hefði verið Fjármálaeftirlitsins að gera það.
Eftir á að hyggja, þá hefði það verið eina vitið.
2012-03-05 13:44:27
visir_is: Sigríður: Gátu þið beitt ykkur gegn þessari
innlánasöfnun?
2012-03-05 13:43:59
visir_is: Geir: Ég heyrði af því að hollenski seðlabankinn hefði
haft efasemdir um Icesve-innlánasöfnunina í Hollandi.
2012-03-05 13:42:45
visir_is: Geir: Kerfið gerði þetta mögulegt, en eftir á er þetta
stórhættulegt og mikil fífldirfska.
2012-03-05 13:42:18
visir_is: Geir: Ég vissi ekkert meira um það en aðrir, þetta var
tilkynningatriði til Fjármálaeftirlitsins.
2012-03-05 13:41:40
visir_is: Sigriður: Hvaða vitneskju hafðir þú um Icesave
innlánasöfnun í Hollandi á vormánuðum 2008?
2012-03-05 13:40:58
visir_is: Sigríður spyr út í Icesave innlánasöfnun í Hollandi. Í
maí 2008 lýsti hollenski seðlabankinn yfir miklum áhyggjum vegna
þessa.
2012-03-05 13:37:44
visir_is: Geir: Þetta var eðlilegur hlutur, BG var að ítreka áður
fram komna hluti er vörðuðu áhyggjur vegna stöðu bankanna.
2012-03-05 13:36:49
visir_is: Í póstinum kemur fram að nauðsynlegt sé að minnka
bankakerfið, samaeina banka og grípa til viðamikilla aðgerða.
2012-03-05 13:36:07
visir_is: Pósturinn var sendur í febrúar 2008.
2012-03-05 13:35:38
visir_is: Sigríður spyr út í tölvupóstur frá Baldri Guðlaugssyni
til Geirs og Árna Mathiessen, þá fjármálaráðherra.
2012-03-05 13:34:52
visir_is: Geir: Björgólfur Thor Björgólfsson leit ekki á það sem
aðkallandi mál, í ágúst 2008, að sameina banka og minnka kerfið.
2012-03-05 13:33:46
visir_is: Geir: Tryggvi Þór Herbertsson fór á vegum Geirs að ræða
við menn í bönkunum um möguleika á því að sameina og hagræða í
bankakerfinu.
2012-03-05 13:32:58
visir_is: Geir: Minnist þess ekki að hafa séð minnisblöð um
hugsanlegar sameiningar og hagræðingaraðgerðir hjá bönkunum, m.a.
hjá Landsbankanum.
2012-03-05 13:30:56
visir_is: Geir: Ég get ekki svarað fyrir þetta, þar sem ég átti ekki
í þessum samskiptum beint. En það var illmögulegt að selja eignir.
2012-03-05 13:30:00
visir_is: Sigríður: Það er boðin fram aðstoð frá seðlabankastjóra
Bretlands, um að draga úr stærð bankakerfisins. Var þessi aðstoð
þegin?
2012-03-05 13:29:25
visir_is: Geir: Það lá fyrir að það væri gott að selja eignir, og
minnka bankakerfið. En hvernig átti að gera það án þess að grafa
undan kerfinu?
2012-03-05 13:28:22
visir_is: Geir: Gordon Brown bauðst til þess að fyrra bragði að tala
við Mervyn King seðlabankastjóra Bretlands og reyna að liðka um fyrir
lánum.
2012-03-05 13:27:13
visir_is: Geir: Ég fékk kynningu á þessu bréfi, og það voru
vonbrigði að við gætum ekki fengið fyrirgreiðslu með
gjaldeyrisskiptasamningum.
2012-03-05 13:25:55
visir_is: Sigríður: Í því bréfi kemur fram að mikilvægt sé að
minnka íslenska bankakerfið. Var þér kynnt þetta bréf? Geir: Já.
2012-03-05 13:24:45
visir_is: Sigríður spyr út í bréf Mervyn King til Davíðs Oddssonar,
í apríl 2008.
2012-03-05 13:23:04
visir_is: Geir: Það fer eftir því hvað er átt við með því, ég
tel ekki að hér hafi geta verið viðmikil fjármálastarfsemi á
alþjóðlegan mælikvarða
2012-03-05 13:22:12
visir_is: Sigríður: Var það þá þitt mat að Ísland væri ekki
góður kostur sem miðstöð fyrir alþjóðlega fjármálastarfsemi?
2012-03-05 13:21:28
visir_is: Geir: Ég hafði aldrei sannfæringu fyrir því að Ísland
gæti orðið alþjóðleg fjármálamiðstöð, eins og Lúxemborg, Sviss,
eða önnur slík lönd.
2012-03-05 13:19:43
visir_is: Sigríður spyr út í ummæli Geirs um að Ísland gæti orðið
alþjóðleg fjármálamiðstöð.
2012-03-05 13:18:09
visir_is: Geir: Fyrst og fremst var þetta til að styrkja
alþjóðasamvinnu og samstarf. En ég við ræddum líka um stöðu
efnahagsmála.
2012-03-05 13:17:26
visir_is: Geir: Ég ákvað sjálfur að funda með Gordon Brown, og David
Cameron, sem þá var í stjórnarandstöðu. Þetta var ekki til að
ræða efnahagskrísu
2012-03-05 13:15:37
visir_is: Geir: Ef bankarnir hefur verið ábyrgir í sínum rekstri, þá
hefði hlutfallsvandinn enginn verið. Stærðin er ekki aðalatriðið,
heldur gæðin,
2012-03-05 13:14:59
visir_is: Geir: "Hlutfallsvandann" er hægt að heimfæra á ýmislegt á
Íslandi. En sá vandi er ekki það sem mestu skiptir.
2012-03-05 13:12:54
visir_is: Sigríður saksóknari spyr út í fund sem Geir átti með
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, í apríl 2008.
2012-03-05 13:11:58
visir_is: Geir: Við vorum með alvarleg tíðindi í höndunum meira og
minna allt árið 2008, þ.e. að áhyggjurnar voru miklar.
2012-03-05 13:10:02
visir_is: Geir: Að beita sér fyrir því að minnka bankakerfið, var
eitt. Að ná því fram var annað. Það var illmögulegt að minnka
bankanna.
2012-03-05 13:08:23
visir_is: Geir: Við áttum í nánu samstarfi við seðlabankann allt
árið 2008, það var nánara eftir þennan tiltekna fund 7. febrúar
2008.
2012-03-05 13:07:39
visir_is: Geir: Misskilningur að þessi fundur hafi haft einhver
úrslitaáhrif varðandi samskipti seðlabankans og
forsætisráðuneytisins. "Ég hafna því".
2012-03-05 13:07:00
visir_is: Geir: Ég fékk aldrei þetta minnisblað, sem var upplesið á
fundinum sem fram fór í febrúar 2008.
2012-03-05 13:06:18
visir_is: Geir: Sagði að þetta hefðu verið svipuð mál og heyrðust
víðar; áhyggjur af stöðu íslensku bankanna.
2012-03-05 13:05:36
visir_is: Geir: Í minnislablaðinu komu fram áhyggjur af stöðu
bankanna, þar helst Glitnis og Kaupþings.
2012-03-05 13:05:11
visir_is: Geir: Á fundinum kynnti Davíð minnisblað sem hann skrifaði
upp eftir ferð til London þar sem hann ræddi við erlenda bankamenn.
2012-03-05 13:04:12
visir_is: Geir: Á fundinum voru Bolla Þór Bollason, Tryggvi Pálsson,
Eiríkur Guðnason, Ingimundur Friðriksson og Davíð Oddsson.
2012-03-05 13:01:46
visir_is: Réttarhald er nú hafið að nýju, Geir svarar spurningum um
fund í febrúar 2008 þar sem rætt var um fjármálakerfið og
hættumerkin.
2012-03-05 13:00:37
visir_is: Fjölskylda Geirs fylgir honum náið eftir, situr á fremsta
bekk og stendur augljóslega þétt við bak hans. #landsdómur
2012-03-05 12:56:56
visir_is: Fólk er nú byrjað að týnast í salinn, réttarhaldið hefst
að nýju eftir nokkrar mínútur.
2012-03-05 12:28:36
visir_is: Nú er hádegishlé á réttarhaldinu, það heldur áfram
klukkan 13:00. Við verðum hér þá, með beina lýsingu. #landsdómur
2012-03-05 12:26:06
visir_is: Geir: Það eru engin loftgöt í þessum ársreikningum, nema
að bankarnir séu "með glæpsamlegum hætti" að villa um, sagði
forstjóri FME við Geir
2012-03-05 12:23:03
visir_is: Geir: Ég reyndi að koma því til skila, með yfirveguðum
hætti, sem ég taldi skynsamlegast á hverjum tíma. #landsómur
2012-03-05 12:22:20
visir_is: Sigríður spyr út í yfirlýsingar á erlendum vettvangi,
varðandi það hvernig eigi að nálgast vandamál bankanna.
2012-03-05 12:19:54
visir_is: Geir: Jafnvel þó menn hafi viljað að bankarnir færu úr
landi,þá var það einfaldlega ekki raunhæfur möguleiki. #landsdómur
2012-03-05 12:17:12
visir_is: Geir: Það sem blasir við, er að engum datt í hug að
bankakerfið myndi hrynja í september 2008.
2012-03-05 12:16:15
visir_is: Geir: Við vorum í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
allt árið 2008. Það fór fram stöðugleikagreining á stöðu mála
hér að ósk seðlabanka
2012-03-05 12:12:05
visir_is: Geir: "Það er oft talað um þetta sem hneyksli, ekki síst í
skýrslu rannsóknar Alþingis. Það er óskiljanlegt."
2012-03-05 12:11:20
visir_is: Geir: Þetta voru sjálfsagðar breytingar og þær voru
algjörlega á okkar valdi, og í takt við okkar áherslur í
stjórnarsáttmálanum.
2012-03-05 12:09:26
visir_is: Geir um forsögu samkomulagsins: Bankastjóri seðlabankans
sænska vildi að íslensk stjórnvöld gerðu breytingar.
2012-03-05 12:07:22
visir_is: Sigríður: Spyr út samkomulag við seðlabanka Norðurlandanna
frá því í maí 2008.
2012-03-05 12:04:13
visir_is: Geir: Við mátum stöðu mála á hverjum tíma, út frá því
sem talið var ábyrgast. Við vorum ekkert sérstaklega að berjast fyrir
bankanna.
2012-03-05 12:02:27
visir_is: Sigríður: Reyndu þið að koma þessum skilaboðum á
framfæri, þ.e .að bankarnir væru traustir og stæðu vel?
2012-03-05 12:01:47
visir_is: Sigríður: Minnisblað frá Ingibjörgu Sólrúnu: Bankarnir eru
of stórir, heimurinn þarf að skynja að Ísland stendur á bak við
fjármálakerfið.
2012-03-05 12:00:27
visir_is: Geir: Samskipti okkar við bankanna, einkenndust að því að
fá upplýsingar, og þrýsta á um ábyrgar aðgerðir í ljósi
aðstæðna.
2012-03-05 11:56:45
visir_is: Geir: Bankarnir stækka á grundvelli alþjóðlegra aðstæðna,
sem "ég lýsti áðan". Ofgnótt lánsfjár um allt blindaði mönnum
sýn. #landsdómur
2012-03-05 11:55:44
visir_is: Geir: Það var ekkert sérstaklega stefnt að frekari vexti
bankanna, fyrst og fremst að efnahagur gæti haldið áfram að blómstra.
2012-03-05 11:54:41
visir_is: Sigríður: Var það stefna ríkisstjórnarinnar að styðja
við áframhaldandi vöxt fjármálafyrirtækja?
2012-03-05 11:53:00
visir_is: Sigríður spyr út stjórnarsáttmála Sjáflstæðisflokks og
Samfylkingar, og atriði er snýr að því að höfuðstöðvar
útrásarfyrirtækja yrðu hér.
2012-03-05 11:49:36
visir_is: Geir: Við töldum lengi vel, að það myndi hugsanlega duga að
bjarga einum banka. En þetta voru allt nálganir að hlutum sem óvissa
var um.
2012-03-05 11:47:47
visir_is: Geir: Það var ljóst, að ef allir bankarnir féllu þá kæmi
ekki annað til greina að bregðast við með neyðaraðgerðum.
2012-03-05 11:46:51
visir_is: Geir: Ekki búið að teikna upp nákvæmlega, hvað það
kostaði ef einn banki félli. En staða gjaldeyrisvaraforðans var ljós.
2012-03-05 11:44:14
visir_is: Geir: Bankarnir reyndu hvað þeir gátu til þess að selja
eignir, en það gekk ekki. Þeir komu sér í vandræði með of örum
vexti. #landsdómur
2012-03-05 11:41:09
visir_is: Geir: Fjármálamarkaðir heimsins "flutu" í ókeypis fjármagni
árum saman, sem höfðu áhrif á nær öll löndum heimsins. #landsdómur
2012-03-05 11:40:26
visir_is: Geir: Eftir árásirnar á tvíburaturnanna 2001 brást
Seðlabanki Bandaríkjanna við með gríðarlegum peningainnspýtingum.
Þarna er rótin!
2012-03-05 11:39:09
visir_is: Geir: Verulegur galli í regluverki ESB er eitt af því sem
gerði bönkum hér á landi það kleift, að verða "tröllvaxnar".
2012-03-05 11:36:39
visir_is: Geir: "Uppblásnar eignir" í efnahag bankanna. Gat
ríkisstjórnin dregið uppáskriftir alþjóðlegra
endurskoðendaskrifstofa í efa?
2012-03-05 11:34:44
visir_is: Geir: Það er enginn vafi á því að bankarnir vildu selja
eignir á árinu 2008, þeir voru hins vegar ekki tilbúnir að gera það
með afföllum.
2012-03-05 11:31:31
visir_is: Geir:"Það var ekki fyrr en eftir hrunið, sem allir sáu það
fyrir!"
2012-03-05 11:29:34
visir_is: Geir: Innlánasöfnun á erlendum vettvangi var eitt af því sem
átti að styrkja fjármögnun bankanna til lengri tíma. #landsdómur
2012-03-05 11:28:47
visir_is: Geir: "Viti menn! Þetta var verðlaunað og þessu hrósað í
hástert, bæði hér á landi og erlendis."
2012-03-05 11:28:14
visir_is: Geir: Eftir vandamálin 2006, var lagt að bönkunum að hefja
innlánasöfnunum á erlendum vettvangi. #landdómur
2012-03-05 11:27:03
visir_is: Geir: Þessi menn studdust við opinber gögn, ársreikninga og
fleira. Þá lá ekki fyrir að það væri hugsanlega "maðkur í mysunni"
hjá bönkunum
2012-03-05 11:25:53
visir_is: Geir vitnar til skýrslu sem Friðrik Már Baldursson vann 2007,
ásamt erlendum samstarfsmanni.
2012-03-05 11:25:02
visir_is: Geir: Stjórnvöld litu svo á að bankakerfið stæði traustari
fótum, eftir að hafa farið yfir það sem mætti betur fara.
2012-03-05 11:23:52
visir_is: Geir: Skýrsla um vandamál bankanna árið 2006, gerði mikið
gagn. Hún tók saman mikilvægar upplýsingar.
2012-03-05 11:21:20
visir_is: Saksóknari spyr nú, réttarhöldin hefjast að nýju. Spurt er
um hina svokölluðu "míní-krísu" 2006. #landsdómur
2012-03-05 11:08:19
visir_is: Hlé hefur nú verið gert á réttarhöldunum. Komum aftur að
vörmu spori.
2012-03-05 11:07:04
visir_is: Geir: Við beindum því til bankanna, að haga sér með eins
ábyrgum hætti og hægt var, meðal annars að minnka efnahagsreikninginn.
2012-03-05 11:06:15
visir_is: Markús spyr: Ræddi Bolli Þór við þig um það, hvernig
ætti að setja þrýsting á bankanna varðandi aðgerðir?
2012-03-05 11:02:16
visir_is: Markús spyr: Nú hefur þú lesið fundargerðir
samráðshópsins eftir ár. Kom eitthvað á óvart í þeim? #landsdómur
2012-03-05 11:01:21
visir_is: Geir: Ég tel að viðskiptaráðherra hafi sinnt sínum störfum
eins og vel og hann gat, og staðið sig vel. #landsdómur
2012-03-05 10:59:21
visir_is: Geir: Kenningin um að það eigi að binda stærð bankakerfis
við tilekna hámarksstærð, fékk ekki háa einkunn í skýrslum um
fjármálamarkaði.
2012-03-05 10:58:32
visir_is: Fjarmálastöðugleikaskýrsla seðlabankans sagði eitt, en
fundargerðir samráðshópsins, sem Geir sá ekki, annað.
2012-03-05 10:57:39
visir_is: Geir: Fjármálastöðugleikaskýrslan sagði til um, að þrátt
fyrir allt, þá stæðu bankarnir traustum fótum. (Les upp úr
skýrslunni).
2012-03-05 10:56:45
visir_is: Geir: Voru efnisatriði fundargerða samráðshópsins í
samræmi við skýrslu seðlabankans um fjármálastöðugleika?
#landsdómur
2012-03-05 10:54:44
visir_is: Geir: Mig rekur ekki minni til þess, en efnisatriðin eru þau
sömu og oft áður, þ.e. hvað skyldi gera ef aðstæður myndu versna.
#landsdómur
2012-03-05 10:54:08
visir_is: Andri: Fékkstu kynningu á skýrslum er vörðuðu hugsanlegt
fjármálaáfall? #landsdómur
2012-03-05 10:51:03
visir_is: Andri: Var því einhvern tímann komið inn á borð til þín
að það væri algjörlega ófullnægjandi vinna í gangi miðað stöðu
bankanna? #landsdomur
2012-03-05 10:49:40
visir_is: Geir: Ég gekk út frá því að stofnanirnar vissu hvað þær
væru að gera, og að vinna samráðshópsins væri miðuð við það.
#landsdómur
2012-03-05 10:48:41
visir_is: Geir: Já, ég þekkti til þess hvernig gengið var frá því
þegar Fjármálaeftirlitið var fært úr seðlabankanum.
2012-03-05 10:47:55
visir_is: Andri spyr: Var þér kunnugt um samkomulag milli FME og
Seðlabankans er varðandi viðbúnaðarmál fyrir fjármálakerfið?
#landsdómur
2012-03-05 10:47:05
visir_is: Andri Árnason er nú að hefja mál sitt.
2012-03-05 10:46:17
visir_is: Geir: Segist gera ráð fyrir að þarna sé rætt um
samráðshópinn, en segist þó ekki geta svarað út í minnisblað
Ingibjargar ítarlega.
2012-03-05 10:45:22
visir_is: Sigríður saksóknari: Spyr út í minnisblað Ingibjargar
Sólrúnar um stöðu mála, þar sem rætt er um "krísunefnd"
forsætisráðuneytisins.
2012-03-05 10:43:38
visir_is: Geir: Aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, Jón Þór
Sturluson, var viðstaddur á "krísutímum" þegar það var verið að
ræða um stöðu mála.
2012-03-05 10:42:59
visir_is: Geir: Það var ákvörðun sem var tekin á pólitískum
forsendum af öðrum stjórnarflokknum, Samfylkingunni.
2012-03-05 10:42:26
visir_is: Sigríður: Hvers vegna var viðskiptaráðherra ekki kallaður
til? #landsdómur
2012-03-05 10:41:33
visir_is: Geir: Þó samráðshópurinn hafi ekki formelga verið kallaður
til, þá voru þeir sem áttu sæti í hópnum á staðnum. Það var
það sem skipti mestu.
2012-03-05 10:40:15
visir_is: Geir: Allir nefndarmenn voru mættir, og yfirmenn þeirra líka.
Það hefði verið út í hött að safna samráðshópnum saman "í
herbergi"!
2012-03-05 10:39:12
visir_is: Saksóknari: Samráðshópurinn var ekki kallaður til, Glitnis
helgina. Hvers vegna? #landsdómur
2012-03-05 10:36:48
visir_is: Geir: Bankastjórarnir gerðu sér ekki grein fyrir að staðan
væri eins slæm og hún var. #landsdómur
2012-03-05 10:35:50
visir_is: Geir: Átti fund með bankastjórum bankanna 18. september 2008,
og fékk upplýsingar um að bankarnir stæðu nægilega vel til þess að
lifa af.
2012-03-05 10:33:31
visir_is: Geir: FME sendi frá sér tilkynningu, 18. september, um að fall
Lehman myndi ekki hafa mikil áhrif á íslensku bankanna.
2012-03-05 10:32:53
visir_is: Geir: Þennan dag, 16. september 2008, áttaði sig enginn á
því hvaða áhrif fall Lehman myndi hafa á aðstæður nokkrum vikum
síðar.
2012-03-05 10:31:39
visir_is: Aðstoðarfólk Andra Árnasonar í málinu, eru Friðrik Árni
Friðriksson hdl. og Hólmfríður B. Sigurðardóttir hdl. Bæði á Juris
lögmannsstofu
2012-03-05 10:26:44
visir_is: Geir: Lögbinding um að það, að bankarnir yrðu að minnka,
hefði sett þá á hausinn á viðkvæmum tímum.
2012-03-05 10:25:28
visir_is: Til upplýsingar: Hér er einkum rætt um starf samráðshóp
stjórnvalda um fjármálastöðugleika fyrir hrun, og hvað hann vissi á
hverjum tíma.
2012-03-05 10:24:14
visir_is: Geir: Stóri punkturinn er þessi: Hvað er ríkið tilbúið að
eyða miklum peningum í að hjálpa einkareknum fyrirtækjum?
2012-03-05 10:23:00
visir_is: Geir: Það hefði verið heimskulegt ef ríkið hefði verið
skilyrt til þess að hjálpa bönkunum. "Það hefðu verið fölsk
skilaboð".
2012-03-05 10:22:18
visir_is: Geir: En ég tel ekki að það hafi skipt sköpum að hafa ekki
hitt samráðshópinn reglulegar.
2012-03-05 10:21:22
visir_is: Geir: Samráðshópurinn vissi alveg hvað hann átti að gera.
En kannski hefði það verið betra ef við hefðum hitt hópinn
reglulegar.
2012-03-05 10:20:36
visir_is: Geir: Það var ekki þannig, að við gætum skipað
stjórnendum einkarekinna fyrirtækja að gera eitthvað, en við gátum
"lagt að þeim" að gera.
2012-03-05 10:16:52
visir_is: Geir: Ýmsar greiningar komu fram á árinu 2008, sem gáfu
misjafna stöðu. Það var hins vegar ekki hægt að sjá viðvaranir
vegna hruns.
2012-03-05 10:11:24
visir_is: Geir segist hafa lesið um kerfislæga mikilvægar
fjármálstofnanir í fræðibókum, en það sé erfitt um það að
segja, miðað við aðstæður.
2012-03-05 10:09:54
visir_is: Geir rekur það í smáatriðum og gerir grein fyrir
starfsreynslu sinni, allt frá því hann lauk stúdentspróf frá MR 1971.
2012-03-05 10:08:05
visir_is: Sigríður spyr óvænt: "Það gleymdist hér í upphafi, en
hvað menntun ert þú með?"
2012-03-05 10:07:32
visir_is: Sigríður saksóknari: Hvað er það, þegar fjármálstofnun
er kerfislega mikilvæg?
2012-03-05 10:04:58
visir_is: Geir: En það tafðist, m.a. vegna þess að kaupendur sáu að
tíminn vann með þeim, sem síðar kom í ljós þegar eignir voru
keyptar á slikk
2012-03-05 10:04:07
visir_is: Geir: Mér var kunnugt um það, að t.d. Glitnir var langt
kominn með að selja eignir í Noregi ,í september 2008.
2012-03-05 10:03:41
visir_is: Geir: Við vorum ekkert sérstaklega góðir í því þegar kom
að almannatengslum. #landsdómur
2012-03-05 10:02:55
visir_is: Geir: "Pointið er þetta. Það er ekki viturlegt hjá
ríkisvaldi að styðja við banka, nema það sé öruggt að það dugi".
2012-03-05 10:01:32
visir_is: Geir: Það vita allir hvað var ákveðið að gera á endanum,
að ábyrgjast innstæður í fjármálakerfinu. Það var
lokaákvörðunin miðað við aðstæður
2012-03-05 10:00:52
visir_is: Geir man ekki eftir að hafa séð, ákveðin gögn sem
Sigríður spyr um, fyrr en eftir á.
2012-03-05 09:58:45
visir_is: Geir: Ég átti síðan að fá þær tillögur frá yfirmönnum
stofnanna, og meta hvort tilefni væri til aðgerða.
2012-03-05 09:57:53
visir_is: Geir: Allt ber að sama brunni. Ef starfsmenn FME töldu
nauðsynlegt að gera eitthvað, þá áttu þeir að fara með það til
sinna yfirmanna.
2012-03-05 09:56:38
visir_is: Geir: Allt miðaðist við sviðsmyndir og hvernig mátti
bregðast við þeim.
2012-03-05 09:55:49
visir_is: Saksóknari spyr út í heimildir til inngripa í erfiðar
aðstæður. Í hverju áttu inngripin að felast?
2012-03-05 09:53:57
visir_is: Geir: "Bankarnir urðu að reyna að bjarga sér sjálfir".
#landsdómur
2012-03-05 09:52:43
visir_is: Geir: Icesave reikningarnir voru "kvikir", peningar fóru hratt
út þegar vondar fréttir bárust en hratt inn þegar ekkert slíkt var
uppi.
2012-03-05 09:51:27
visir_is: Geir: Það var ekki hægt að grípa til aðgerða, eins og að
selja eignir. "Það var útilokað, markaðsaðstæður voru þannig."
2012-03-05 09:49:19
visir_is: Geir: Eftir á að hyggja þá hefði seðlabankinn frekar átt
að setja hömlur á fyrirgreiðslu til bankanna, en það hefði kallað
fram ramakvein.
2012-03-05 09:47:47
visir_is: Geir: Seðlabankinn var að reyna allt sem hann gat gert til
þess að auka laust fé í umferð.
2012-03-05 09:46:09
visir_is: Sigríður saksóknari: Spyr út í vinnu samráðshóps
stjórnvalda um fjármálakerfið, og hvaða hugmyndir voru ræddar, á
hverjum tíma #landsdómur
2012-03-05 09:44:08
visir_is: Geir: Ég fékk kynningu á þessum upplýsingum frá
seðlabankastjóra. Þetta voru sviðsmyndir, ekki spádómar. #landsdómur
2012-03-05 09:43:22
visir_is: Sigríður spyr úr í minnisblað frá Andrew Gracie, sem vann
áhættugreiningu á fjármálakerfinu íslenska, í febrúar 2008.
2012-03-05 09:42:42
visir_is: Geir: Við vildum fá nýjustu upplýsingar um gang mála hjá
bönkunum. Þrír fundir með hverjum banka. Sérstaklega um stöðu
Glitnis, jan 2008
2012-03-05 09:39:50
visir_is: Geir: Því miður dróst vinnan hjá ESB og Ísland var ekki
orðið aðili að þessu samstarfi þegar bankarnir féllu #landsdómur
2012-03-05 09:38:35
visir_is: Geir: Ég ræddi við yfirmenn fjármálamarkaða hjá
Evrópusambandinu um að Ísland gerðist samstarfsaðili samræmdum
aðgerðum.
2012-03-05 09:37:23
visir_is: Geir kallaði til alla bankastjóranna á fund í kjölfarið,
sem fram fór 15. janúar 2008.
2012-03-05 09:36:53
visir_is: Geir fjallaði um erfiða stöðu bankanna, með
seðlabankastjóra og fjármálaráðherra að kveldi 13. janúar 2008.
2012-03-05 09:34:54
visir_is: Geir: Það var ekki hægt að taka endanlegar ákvarðanir fyrr
en á síðustu stundu, líkt og sást um allan heim þegar erfiðleikar
dundu yfir.
2012-03-05 09:33:34
visir_is: Sigríður: Það er eðlilegt að spyrja út í hvort vinnan
hafi verið nægilega markviss.
2012-03-05 09:33:04
visir_is: Andri: "Geri athugasemd við þetta orðalag, að tala um
markvissari vinnu. Hvað á saksóknari við?" #landsdómur
2012-03-05 09:31:02
visir_is: Geir: Get ekki nafngreint þá alla, en lögfræðingar FME, og
sérfræðingar á þeirra vegum, sömdu efnisatriðin að mestu.
2012-03-05 09:29:55
visir_is: Sigríður: Hverjir komu að því að semja neyðarlögin?
2012-03-05 09:28:46
visir_is: Sigríður: Miðlaðiru upplýsingum sem þér bárust til
annarra ráðherra? Geir: Eftir því sem við átti, já. Til fjármála-
og viðskiptaráðherra.
2012-03-05 09:27:31
visir_is: Bolli Þór var í samráðshópi stjórnvalda um
fjármálastöðugleika fyrir hrun.
2012-03-05 09:27:03
visir_is: Geir: Samstarf okkar Bolla Þórs Bollasonar (ráðuneytisstjóra
í ráðuneyti Geirs) var mjög náið og á milli okkar ríkti algjört
traust.
2012-03-05 09:26:19
visir_is: Sigríður: Varstu upplýstur reglulega um það sem
samráðshópur stjórnvalda var að fjalla um? Geir: Já, en misreglulega.
2012-03-05 09:25:25
visir_is: Úr salnum: Hér er þéttsetið. Sturla Jónsson situr við
hliðina á Andra Óttarssyni, fyrrum framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins.
2012-03-05 09:23:55
visir_is: Geir: "Ætlaðist einhver til þess að samráðshópurinn kæmi
í veg fyrir bankahrun, ef þær aðstæður myndu skapast?"
2012-03-05 09:23:16
visir_is: Geir: Viðbúnaðaráætlun samráðshópsins var grunnurinn að
því sem síðar var gert.
2012-03-05 09:22:03
visir_is: Geir: Samráðshópur stjórnvalda lét vinna drög að
viðbúnaðaráætlun, sem síðar voru drög að frumvarpi til
neyðarlaga.
2012-03-05 09:21:03
visir_is: Geir: Ég horfði alltaf til þess, að skattgreiðendur væru
ekki að bera tjón einkarekinna fyrirtækja og hluthafa þeirra.
2012-03-05 09:19:45
visir_is: Geir: Eftirlitsstofnanir, sem höfðu ríkar valdheimildir og
gátu gripið til aðgerða á grundvelli ítarlegra gagna.
2012-03-05 09:18:44
visir_is: Sigríður: Hver átti að taka lokaákvarðanir í málum sem
samráðshópur stjórnvalda var að fjalla um?
2012-03-05 09:17:46
visir_is: Geir: "Grundvallaratriðið" að eigendur og stjórnendur
fjármálafyrirtækja leysi sín vandamál sjálfir.
2012-03-05 09:16:15
visir_is: Sigríður spyr út í verk og starf samráðshóps stjórnvalda
um fjármálastöðugleika, í samræmi við lið ákæru þar um.
http://t.co/kl62ewNq
2012-03-05 09:14:13
visir_is: Geir segist hafa talið, að verkstjórn í starfshópum
stjórnvalda um fjármálastöðugleika, hafi verið í góðu lagi.
2012-03-05 09:13:06
visir_is: Geir segist hafa treyst þeim embættismönnum sem sátu í
samráðshópi stjórnvalda á hverjum tíma, og eftirlitsstofnunum
sömuleiðis.
2012-03-05 09:11:04
visir_is: Geir rekur ástæður þess að samráðshópur stjórnvalda um
fjármálastöðugleika hafi var settur á laggirnar. Það var gert árið
2006.
2012-03-05 09:08:32
visir_is: "Fagna því að fá tækifæri til þess að svara. Ég tel ekki
að ákæruatriði eigi við rök að styðjast," segir Geir.
2012-03-05 09:07:53
visir_is: Sigríður Friðjónsdóttir, les upp efnisatriðin í
ákæruliðunum sem eftir eru. Geir hafnar alfarið að hafa brotið af
sér.
2012-03-05 09:06:33
visir_is: "Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ tækifæri til þess að
svara fyrir mig í þessu máli", segir Geir. Skýrslutakan er formlega að
hefjast.
2012-03-05 09:05:41
visir_is: Markús Sigurbjörnsson kynnir Geir réttindi sín, áður en
skýrslutaka hefst.
2012-03-05 09:04:13
visir_is: Geir H. Haarde stendur upp, brúnaþungur, og fær sér sæti í
vitnastúkunni. Hann er að fara að gefa skýrslu frammi fyrir Landsdómi.
2012-03-05 09:03:11
visir_is: Eiríkur Tómasson hefur tekið sæti Gunnlaugs Claessen í
Landsdómi, sem sagði sig frá málinu vegna mikilla forfalla.
2012-03-05 09:01:20
visir_is: "Dómsþing Landsdóms er sett" segir dómritari.
2012-03-05 09:00:08
visir_is: Dómarar Landsdóms ganga í salinn. Réttur er settur, í
einstöku ákærumáli Alþingis gegn fyrrverandi forsætisráðherra, Geir
H. Haarde.
2012-03-05 08:57:59
visir_is: Dómarar Landsdóms ganga í salinn. Réttur er settur, í
einstöku dómsmáli.
2012-03-05 08:56:38
visir_is: Fjölmiðlafár, er orðið sem best lýsir því sm hér á sér
stað. Erlendir og innlendir fjölmiðlamenn umkringja Geir.
2012-03-05 08:55:01
visir_is: Geir H. Haarde er mættur í hús, ásamt fóstursyni sínum,
Borgari Einarssyni lögmanni.
2012-03-05 08:54:19
visir_is: Hér er nú hvert sæti skipað, og ljóst að margir munu þurfa
frá að hverfa. Sögulegir atburðir í aðsigi, sem verði þrykktir í
minni þjóðar.
2012-03-05 08:51:34
visir_is: Fjölskylda Geirs H. Haarde hefur komið sér fyrir á fremstu
bekkjum í salnum.
2012-03-05 08:48:47
visir_is: Spennuþrungin stund nálgast óðum, þegar Geir H. Haarde kemur
fyrir Landsdóm.
2012-03-05 08:48:02
visir_is: Hér er allt að fyllast, Helgi Magnús Gunnarsson,
aðstoðarsaksóknari, og Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari, eru
að koma sér fyrir.
2012-03-05 08:46:01
visir_is: Inga Jóna Þórðardóttir, kona Geirs H. Haarde var að mæta
í hús, og Ragnheiður elín Árnadóttir sömuleiðis.
2012-03-05 08:43:06
visir_is: Sturla Jónsson vöruflutningabílstjóri var að koma í salinn.
Vinir og samstarfsmenn Geirs sömuleiðis, meðal annars Gréta
Ingþórsdóttir
2012-03-05 08:37:13
visir_is: Andri Árnason er að koma gögnum sínum fyrir á borðinu,
möppum og skrifblokkum. Allt til reiðu hans megin.
2012-03-05 08:32:55
visir_is: Hér fjölgar jafnt og þétt. Töluverður fjöldi erlendra
fjölmiðlamanna er hér staddur. Andri Árnason hrl., lögmaður Geirs,
var að koma.
2012-03-05 08:05:50
visir_is: Vísir.is er mættur á vettvang í Þjóðmenningarhúsinu,
fyrstur allra raunar. Hér er allt til reiðu fyrir upphaf
Landsdómsmálsins.
