Handbolti

Arnór meiddist í dag | Ege sleit hásin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór í leik með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu.
Arnór í leik með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu. Mynd/AP
Arnór Atlason meiddist í leik með liði sínu, AG Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Liðsfélagi hans, markvörðurinn Steinar Ege, sleit hásin og verður frá næstu sex mánuðina.

Arnór hefur verið að glíma við bakmeiðsli undanfarna mánuði en í dag meiddist hann á vöðva aftan á læri. Óvíst er hversu lengi hann verður frá en hann gat ekkert spilað eftir að hann meiddist á upphafsmínútunum.

Ísland tekur þátt í umspili fyrir Ólympíuleikana í byrjun apríl og ljóst að landsliðið myndi sakna Arnórs mikið í því verkefni enda hefur hann verið lykilmaður í liðinu undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×