Handbolti

HK í úrslitakeppnina fjórða árið í röð - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Stefán
HK-ingar tryggðu sér sæti í úrslitakeppni N1 deildar karla í handbolta með því að vinna 26-23 sigur á Fram í Digranesi í kvöld í hreinum úrslitaleik um fjórða og síðasta sætið.

HK-menn eru þar með í úrslitakeppninni fjórða árið í röð en HK er eina liðið sem hefur verið með í öll skiptin síðan að úrslitakeppnina var tekin upp að nýju vorið 2009. Haukar og Akureyri eru með í þriðja sinn en FH bara í annað skiptið.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik HK og Fram í Digranesi í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×