Golf

Master 2012: Rástímar á þriðja keppnisdegi | Tiger hefur leik 14:45

Tiger Woods er í 40-46. sæti þegar keppni er hálfnuð á Masters.
Tiger Woods er í 40-46. sæti þegar keppni er hálfnuð á Masters. Getty Images / Nordic Photos
Þriðji keppnisdagur á Mastersmótinu í golfi fer fram í dag og verða Bandaríkjmennirnir Fred Couples og Jason Dufner í síðasta ráshópnum sem leggur af stað 18.45 að íslenskum tíma. Áhugamaðurinn Kelly Kraft, sigurvegarinn á bandaríska áhugamannameistaramótinu, fer fyrstur af stað í dag kl. 13.15 en hann verður einn í ráshóp. Tiger Woods hefur leik kl. 14:45 og verður hann með sigurvegara síðasta árs í ráshóp, Suður-Afríkumanninum Charl Schwartzel.

Rástímar á þriðja keppnisdegi eru þannig: Kylfingarnir eru bandarískir nema annað sé tekið fram. (x) er fyrir framan áhugakylfinga.



Staðan á mótinu:


Bein útsending frá mótinu hefst 19.30 á Stöð 2 sport:

13:15 (x) Kelly Kraft

13:25 Angel Cabrera (Argentína), Trevor Immelman (Suður-Afríka)

13:35 (x) Patrick Cantlay, Thomas Björn (Danmörk)

13:45 Gonzalo Fernandez-Castano (Spánn), Edoardo Molinari (Ítalía)

13:55 Keegan Bradley, Luke Donald (England)

14:05 Steve Stricker, Rickie Fowler

14:15 Robert Karlsson (Svíþjóð), Bo Van Pelt

14:25 Anders Hansen (Danmörk), Ross Fisher (England)

14:35 Scott Verplank, Martin Laird (Skotland)

14:45 Charl Schwartzel (Suður-Afríka), Tiger Woods

14:55 Scott Stallings, Martin Kaymer (Þýskaland)

15:15 Graeme McDowell (Norður-Írland), Brandt Snedeker

15:25 Bae Sang-moon (Suður-Kórea), Kevin Chappell

15:35 Bill Haas, Geoff Ogilvy (Ástralía)

15:45 David Toms, Stewart Cink

15:55 Kevin Na, Webb Simpson

16:05 Adam Scott (Ástralía), (x) Hideki Matsuyama (Japan)

16:15 Justin Rose (England), Francesco Molinari (Ítalía)

16:25 Hunter Mahan, Padraig Harrington (Írland)

16:35 Ian Poulter (England), Fredrik Jacobson (Svíþjóð)

16:45 Gary Woodland, Zach Johnson

16:55 Jim Furyk, YE Yang (Suður-Kórea)

17:15 Sean O'Hair, Jonathan Byrd

17:25 Henrik Stenson (Svíþjóð), Nick Watney

17:35 Peter Hanson (Svíþjóð), Aaron Baddeley (Ástralía)

17:45 Vijay Singh (Fijí), Phil Mickelson

17:55 Ben Crane, Charles Howell

18:05 Matt Kuchar, Miguel Angel Jimenez (Spánn)

18:15 Bubba Watson, Paul Lawrie (Skotland)

18:25 Sergio Garcia (Spánn), Rory McIlroy (Norður-Írland)

18:35 Louis Oosthuizen (Suður-Afríka), Lee Westwood (England)

18:45 Jason Dufner, Fred Couples


Tengdar fréttir

Masters 2012: Couples og Dufner efstir | Tiger langt frá sínu besta

Hinn 52 ára gamli Fred Couples stal senunni á öðrum keppnisdegi Mastersmótsins í golfi. Bandaríkjamaðurinn sem sigraði á þessu risamóti árið 1992 lék eins og unglingur þar sem hann fékk sjö fugla og endaði hann á 67 höggum eða -5. Hann deilir efsta sætinu með landa sínum Jason Dufner sem lék á 70 höggum á öðrum keppnisdeginum.

Masters 2012: Tiger Woods ætlar sér enn sigur | er í 40.-46. sæti

"Ég lagði mig fram og reyndi mitt besta við hvert einasta högg. Halda einbeitingunni og slá næsta högg eins og ég ætlaði mér – það gekk nánast aldrei upp en ég var að reyna eins og ég gat,“ sagði Tiger Woods eftir að hafa leikið á 75 höggum á öðrum keppnisdegi Mastersmótsins í golfi. Tiger, sem er fjórfaldur sigurvegari á þessu risamóti, er samtals á +3 í 40.-46. sæti mótsins þegar kepni er hálfnuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×