Lið með heimavallarrétt í lokaúrslitum hefur ekki tapað í tíu ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2012 17:15 Keflavík varð Íslandsmeistari í fyrra. Mynd/Daníel
Njarðvík og Haukar hefja í kvöld úrslitaeinvígi sitt um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta en fyrsti leikur liðanna hefst klukkan 19.15 í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Njarðvík er bikarmeistari og Haukar sópuðu út Íslandsmeisturum Keflavíkur. Haukar geta orðið Íslandsmeistarar í fjórða sinn á sjö árum en Njarðvík er að reyna að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í kvennaflokki. Sagan segir að það sé gott að vera með heimavallarrétt í lokaúrslitum hjá konunum því það lið sem hefur haft hann hefur orðið Íslandsmeistari undanfarin níu tímabil eða allt síðan að KR vann 3-2 sigur á ÍS vorið 2002 eftir að hafa lent 2-0 undir í úrslitaeinvíginu. Keflavík vann 3-0 sigur á Njarðvík í fyrra og árin tvö þar á undan unnu Haukar og KR bæði titilinn þrátt fyrir að hafa tapað fyrsta leik. Bæði liðin tryggðu sér titilinn í oddaleik á heimavelli. Á árunum 2003 til 2008 unnu síðan liðin með heimavallarréttinn 18 af 19 leikjum í úrslitaeinvíginu. Þessi tölfræði ætti að boða gott fyrir Njarðvíkurkonur sem brjóta blað með sigri í kvöld því það væri þá fyrsti sigurleikur liðsins í lokaúrslitum kvenna. Þær hafa þegar brotið blað á þessu tímabili því bikarmeistaratitill liðsins í febrúar var fyrsti stóri titill kvennakörfuboltaliðs Njarðvíkur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Sjá meira