Handbolti

AG komið í undanúrslit danska handboltans

Ólafur Stefánsson í leik með AG.
Ólafur Stefánsson í leik með AG.
Danska ofurliðið AG hélt í kvöld ótrautt áfram í átt að úrslitarimmu danska handboltans er það lagði Team Tvis Holstebro, 30-28. Með sigrinum tryggði AG sér sæti í undanúrslitunum.

AG mátti svo sannarlega hafa fyrir sigrinum í kvöld. Var undir framan af en tók á honum stóra sínum í síðari hálfleik og landaði sigrinum.

AG er búið að vinna alla sína leiki í úrslitakeppni danska handboltans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×