Handbolti

Afturelding hélt sæti sínu í efstu deild karla í handbolta

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Afturelding spilar í efstu deild karla á næstu leiktíð annað árið í röð.
Afturelding spilar í efstu deild karla á næstu leiktíð annað árið í röð. Mynd / Valli
Afturelding úr Mosfellsbæ vann fimm marka sigur á Stjörnunni í annari viðureign liðanna um sæti í efstu deild karla í handknattleik í kvöld.

Leikur liðanna fór fram í Garðabænum og var spennandi framan af. Jafnt var á flestum tölum í fyrri hálfleiknum en í þeim síðari sigu gestirnir fram úr.

Lokatölurnar urðu 32-27 gestunum úr vil sem héldu þar með sæti sínu á meðal þeirra bestu. Garðbæingar þurfa að bíta í það súra epli að spila í næstefstu deild á næsta keppnistímabili, fjórða árið í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×