Handbolti

GUIF tapaði með einu marki

Kristján Andrésson.
Kristján Andrésson.
Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í sænska liðinu GUIF eru í hörkueinvígi gegn Kristianstad í undanúrslitum sænska handboltans. GUIF vann fyrsta leikinn með tveggja marka mun en tapaði öðrum leiknum í dag með einu marki, 32-31.

Joakim Hykkerud fór mikinn í liði Kristianstad og skoraði 9 mörk. Markus Olsson skoraði 7 og Johan Jepson 5.

Tobias Aren var markahæstur hjá GUIF með 9 mörk en Haukur Andrésson, bróðir Kristjáns þjálfara, lék ekki með liðinu í dag.

Næsti leikur liðanna fer fram eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×