Handbolti

Hvidt fer ekki í leikbann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Kasper Hvidt fer ekki í leikbann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leik AG og Barcelona í kvöld og missir því ekki af seinni leik liðanna í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

AG vann leikinn örugglega, 29-23, en Hvidt fékk rautt á lokamínútunni fyrir að ýta við danska landsliðsmanninum Jesper Nöddesbo, leikmanni Barcelona. Jesper Nielsen, eigandi AG, sagði eftir leik að enginn myndi fara í leikbann eftir leikinn.

„Dómararnir sögðu okkur eftir leikinn að enginn leikmannanna fari í bann," sagði Nielsen við danska fjölmiðla. Stuðningsmönnum AG er því létt enda er hinn aðalmarkvörður liðsins, Norðmaðurinn Steinar Ege, meiddur.

Síðari leikurinn fer fram í Barcelona eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×