Handbolti

Frábær byrjun AG tryggði sigur

Danska ofurliðið AG frá Kaupmannahöfn tryggði sér í kvöld fyrsta sætið í sínum riðli í úrslitakeppni danska handboltans. AG lagði þá Aarhus 31-28.

AG mun því mæta liði númer tvö í hinum riðlinum í undanúrslitum.

AG hafði mikla yfirburði allt frá upphafi og komst í 8-1 fljótlega og leit aldrei til baka. Aarhus klóraði sig aftur inn en AG hleypti þeim aldrei nálægt sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×