Handbolti

Guðný Jenný: Við eigum mikið inni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
mynd/pjetur
"Ég er búinn að skoða þær aðeins og þær eru sterkar í gegnumbrotum og með fínar skyttur. Þetta er flott lið sem við erum að fara að mæta," sagði landsliðsmarkvörðurinn Guðný Jenný Ásmundsdóttir en hún þarf að eiga góðan leik gegn Spáni í kvöld.

Íslenska liðið spilar þá í Vodafonehöllinni gegn þeim spænsku og verður að vinna. Spánverjar unnu fyrri leik liðanna, 27-22.

"Í síðasta leik var vörnin ekki nógu góð hjá okkur. Ég var ekki góð heldur þá og nú þarf ég að bíða betur og lesa skotin betur. Ég var kannski að fara of fljótt af stað síðast.

"Ég tel okkur eiga mikið inni frá síðasta leik. Þar á meðal ég því mér fannst ég eiga að geta gert mikið betur. Fyrsta sem maður hugsaði eftir þann leik var að við myndum vinna á heimavelli.

"Við höfum sýnt að við getum unnið stóru liðin. Við ætlum okkur að vinna alla leiki og við höfum að meira að keppa í þessum leik. Þær geta tryggt sig inn á heimavelli gegn Sviss en það er að duga eða drepast hjá okkur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×