Handbolti

Snorri: Lítið sem má fara úrskeðis

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson var eðlilega niðurlútur eftir tap sinna manna í AG fyrir Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag.

„Ég veit nú ekki alveg hvað gerðist hér undir lokin. Það þarf að skoða það betur á myndbandi," sagði Snorri við Vísi eftir leikinn í kvöld.

„Við lentum í vandræðum með vörnina þeirra og Sterbik í markinu. En við áttum samt okkar möguleika. Í svona leikjum er lítið sem þarf til að það fari illa og það gerði það í dag."

„Okkur gekk ágætlega í fyrri hálfleik en hleyptum þeim inn í leikinn með því að fá brottrekstra á okkur í seinni hálfleik. Eftir það var þetta erfitt."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×