Handbolti

Titillinn blasir við AG

Guðjón Valur á ferðinni í kvöld.
Guðjón Valur á ferðinni í kvöld. mynd/ole nielsen
Íslendingaliðið AG frá Kaupmannahöfn er komið með níu fingur á danska meistaratitilinn eftir öruggan ellefu marka sigur, 19-30, á Bjerringbro-Silkeborg í fyrri leik liðanna um danska meistaratitilinn.

Yfirburðir AG í leiknum voru miklir en liðið leiddi með sjö marka mun í leikhléi, 7-14.

Ofurliðið danska bætti svo í síðustu 30 mínúturnar og svo gott sem sá til þess að síðari leikurinn er svo gott sem formsatriði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×