Herdís og Andrea vilja opið bókhald Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 24. júní 2012 11:28 Herdís Þorgeirsdóttir og Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðendur.
Andrea J. Ólafsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir hafa farið fram á að meðframbjóðendur sínir opni bókhald sitt og láti kjósendur vita hvaðan fjárframlög koma. „Það er eðlileg krafa í öllum kosningum," segir í fréttatilkynningu frá framboði Andreu. „Sérstaklega í ljósi þess hvað kemur fram í Rannsóknarskýrslu Alþingis." Þá segir Andrea að hún hafi ákveðið að þiggja enga styrki frá fyrirtækjum — hún hafi þó þegið föt að láni frá íslenskum hönnuðum og þiggur sjálfboðavinnu við framboðið. „Á lokaspretti kosningabaráttunnar auglýsir einn frambjóðandi mjög víða," segir í tilkynningunni en þar er vísað til auglýsinga Þóru Arnórsdóttur, forsetaframbjóðanda. „Það er eðlileg krafa kjósenda að vita hvaðan peningarnir koma sem greiða svo dýrkeyptar auglýsingar til að styðja þann frambjóðanda í embætti forseta — embætti sem er og verður alltaf pólitískt í eðli sínu þar sem það er hluti af stjórnskipan landsins." Herdís tekur í sama streng á Facebook síðu sinni: „Ég hef skorað á aðra frambjóðendur til embættis forseta Íslands að sýna íslensku þjóðinni þá virðingu að opna bókhald sitt strax svo að kjósendur séu upplýstir um það hvaðan peningar að baki framboðunum koma áður en þeir ganga að kjörborðinu þann 30. júní næstkomandi." „Hvet aðra frambjóðendur til embættis forseta Íslands að opna bókhald framboðs síns," skrifar Herdís. „Svo að kjósendur viti hvort þetta eru „2007-frambjóðendur" áður en þeir kjósa." Hægt er að sjá fréttatilkynningu Andreu í heild sinni hér fyrir neðan: Allir frambjóðendur opni bókhald sitt fyrir kosningar Ég var fyrst til að skora á alla forsetaframbjóðendur á fundinum í Iðnó þann 30. maí að opna bókhaldið sitt og láta kjósendur vita hvaðan fjárframlög koma. Ég geri það aftur núna. Herdís Þorgeirsdóttir hefur tekið undir þessa áskorun frá mér og hún er jafnframt með opið bókhald eins og ég sjálf. Það er eðlileg krafa í öllum kosningum – sérstaklega í ljósi þess hvað kemur fram í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Áttunda bindi skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis ber heitið Siðferði og starfshættir í tengslum við fall íslensku bankanna 2008. Í kafla II. 3 segir:„Eitt augljósasta tæki viðskiptalífsins til að hafa áhrif á stjórnmálamenn eru bein fjárframlög, bæði til stjórnmálaflokka og einstakra stjórnmálamanna". Meðal lærdóma sem í skýrslunni er sagt að draga þurfi er að: „Leita þarf leiða til þess að draga skýrari mörk á milli fjármálalífs og stjórnmála. Ekki er líðandi að gæslumenn almannahagsmuna gangi erinda einkafyrirtækja með þeim hætti sem gert var í aðdraganda bankahrunsins." Hátt í 70% þjóðarinnar (Gallup könnun sept 2010) vilja aðskilja stjórnmálaöfl frá viðskiptalífinu og ægivaldi fjármagnsins. Ég vil vera gott fordæmi hvað varðar aðskilnað stjórnmála og viðskiptalífs. Ég ákvað sjálf frá upphafi að þiggja enga styrki frá fyrirtækjum, en ég hef þó þegið föt að láni frá íslenskum hönnuðum og ég þigg sjálfboðavinnu við framboðið, eins og t.d. heimasíðugerð og ljósmyndun. Ég hef ekki leitað til fólks að öðru leyti en því að birta upplýsingar um bankareikning á heimasíðunni minni og inn á hann hafa komið 26 þúsund krónur í stuðning frá tveimur einstaklingum og ég þakka þeim kærlega fyrir framlögin sem koma til með að greiða fyrir kostnað við lén og hýsingu heimasíðu og bensín http://www.andreaolafs.is/studningur/ Á lokaspretti kosningabaráttunnar auglýsir einn frambjóðandi mjög víða. Það er eðlileg krafa kjósenda að vita hvaðan peningarnir koma sem greiða svo dýrkeyptar auglýsingar til að styðja þann frambjóðanda í embætti forseta – embætti sem er og verður alltaf pólitískt í eðli sínu þar sem það er hluti af stjórnskipan landsins. Allir forsetar í sögu lýðveldisins hafa tekið hápólitískar ákvarðanir. Það er líka pólitík að taka ekki afstöðu eða að ætla ekki að nota málskotsrétt fólksins (nema í neyðartilvikum). Málskotsrétturinn er fullkomlega lýðræðislegt tæki þjóðarinnar til ákvarðanatöku um stór mál og þarf enga neyð til að virkja hannEins hljóta kjósendur að eiga kröfu á að vita hvaðan peningar til sitjandi forseta koma. Aðrir frambjóðendur hafa eflaust minna fjármagn á bakvið sig, en eðlilegt að allir gefi það upp.http://www.andreaolafs.is/pistlar/allir-frambjodendur-opni-bokhald-sitt-fyrir-kosningar/
Forsetakosningar 2012 Mest lesið Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum Innlent Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Innlent Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Innlent Langþreyttur á TikTok áreiti og rasískum orðsendingum skólakrakka Innlent Óheppileg „læk“ Reykjavíkurborgar: „Okkur þykir þetta miður“ Innlent Hefur áhyggjur af unga fólkinu Innlent Dularfull brotlending nærri Area 51 Erlent Hitnar undir feldi Lilju Innlent Átján sagt upp í Seljahlíð Innlent Keyrt á vegfaranda í Skeifunni Innlent Fleiri fréttir Útlendingastofnun: Ekkert bendi til ómannúðlegrar meðferðar í Króatíu Hitnar undir feldi Lilju Játaði að hafa stolið tugum milljóna úr dánarbúi móður sinnar Játaði áralangt kynferðisofbeldi gegn stjúpdóttur sinni Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Fékk aðsvif og missti bílinn yfir á annan vegarhelming Hefur áhyggjur af unga fólkinu Ungir Sjálfstæðismenn vilja stöðva hælisveitingar Sér fram á margar klukkustundir í fullkominni óvissu Takmörk á því hversu langt Ísraelar geti farið til að verja hafnbann Keyrt á vegfaranda í Skeifunni Óheppileg „læk“ Reykjavíkurborgar: „Okkur þykir þetta miður“ Hafa rætt við ísraelsk stjórnvöld og sett fram kröfur vegna Margrétar Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum „Minnir á saltveðrið mikla“ Magga Stína tekin höndum og gular viðvaranir í kortunum Stúlkan komin í leitirnar Bændum verulega brugðið vegna breytinga á búvörulögum Ákærður fyrir stunguárás á Seltjarnarnesi Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Átján sagt upp í Seljahlíð Fyrri degi heimsóknar lauk með kvöldverði í forsetahöllinni Sást blóðugur fyrir utan fjölbýlishús Langþreyttur á TikTok áreiti og rasískum orðsendingum skólakrakka „Það er sárt að þurfa að horfa á eftir þeim“ Ekki hlutverk stjórnarandstöðunnar að halda uppi stemmingu Segir réttast að ráðherra dragi drögin í heild sinni til baka Spyr hvort aflífa þurfi sig vegna mjaðmaskipta Þungt símtal bónda í Skagafirði Lögregla lýsir eftir fimmtán ára stúlku Sjá meira