Handbolti

Larlholm samdi við Pick Szeged

Sænski landsliðsmaðurinn í handbolta, Jonas Larholm, hefur ákveðið að söðla um. Hann er hættur hjá Álaborg í Danmörku og fluttur til Ungverjalands.

Þar skrifaði hann undir samning við ungverska stórliðið Pick Szeged.

"Ég hef spilað þarna tvisvar. Einu sinni með Barcelona og einu sinni með Álaborg. Þá varð ég mjög hrifinn af öllu sem ég sá. Ég er mjög spenntur fyrir þessu nýja ævintýri," sagði Larholm.

Þetta er mikið áfall fyrir lið Álaborgar þar sem Larholm hefur verið lykilmaður síðustu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×