Handbolti

Kveðjuleikur Guðmundar í Kaplakrika | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Daníel
Ísland vann í kvöld sjö marka sigur á Argentínu en það var síðasti leikur íslenska landsliðsins undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar hér á landi.

Liðið heldur nú til Lundúna þar sem Ólympíuleikarnir verða settir á föstudaginn. Samningur Guðmundar rennur út eftir leikana og hefur þegar verið tilkynnt að hann muni ekki halda áfram til að geta einbeitt sér að starfi sínu hjá Rhein-Neckar Löwen.

Ólafur Stefánsson mun væntanlega einnig kveðja landsliðið eftir Ólympíuleikana og því óvíst hvort hann spili aftur hér á landi, að minnsta kosti í treyju íslenska landsliðsins.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var í Kaplakrika í kvöld og tók þessar myndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×