Golf

Feðgin mætast í Einvíginu á Nesinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson Mynd/GSImyndir.net
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL í golfi, Einvígið á Nesinu, fer fram í 16. skipti á Nesvellinum í dag.

Meðal þátttakenda eru feðginin Björgvin Sigubergsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem feðgin mætast í Einvíginu.

Venju samkvæmt er ellefu bestu kylfingum landsins boðið til keppni en misjafnt er hve margir þeirra eiga heimangengt.

Keppni hefst með höggleik klukkan 10 þar sem Arnór Ingi Finnbjörnsson GR og Rósant Birgisson úr NK berjast um síðasta lausa sætið í einvíginu.

Klukkan 13 hefst einvígið. Þar fellur einn keppandi út á hverri holu þar til tveir kylfingar berjast um sigurinn á lokaholunni.

Keppendur á mótinu í ár

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG

Björgvin Sigurbergsson, GK

Guðjón Henning Hilmarsson, GKG

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK

Hlynur Geir Hjartarson, GOS

Nökkvi Gunnarsson, NK

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL

Þórður Rafn Gissurarson, GR

Örn Ævar Hjartarson, GS

Arnór Ingi Finnbjörnsson GR/Rósant Birgisson NK

DHL hefur verið styrktaraðili mótsins frá upphafi og styrkt félög eða samtök sem láta sér hag langveikra barna varða. Í ár er það Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, sem fær eina milljón króna.

Sigurvegarar frá upphafi

1997 Björgvin Þorsteinsson

1998 Ólöf María Jónsdóttir

1999 Vilhjálmur Ingibergsson

2000 Kristinn Árnason

2001 Björgvin Sigurbergsson

2002 Ólafur Már Sigurðsson

2003 Ragnhildur Sigurðardóttir

2004 Magnús Lárusson

2005 Magnús Lárusson

2006 Magnús Lárusson

2007 Sigurpáll Geir Sveinsson

2008 Heiðar Davíð Bragason

2009 Björgvin Sigurbergsson

2010 Birgir Leifur Hafþórsson

2011 Nökkvi Gunnarsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×