Þróttarar á miklu skriði í 1. deildinni - sjáið mörkin í skellinum á toppliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2012 21:00 Karl Brynjar Björnsson. Mynd/Anton
Þróttarar ætla að vera með í baráttunni um sæti í Pepsi-deildinni næsta sumar þótt að liðið hafi aðeins náð að vinna tvo af fyrstu tólf deildarleikjum sínum í sumar. Þróttarar sýndu styrk sinn með því að vinna 4-1 stórsigur á toppliði Víkinga úr Ólafsvík í gærkvöldi en þeir höfðu áður vakið mikla athygli með því að komast alla leið í undanúrslit Borgunarbikarins. Halldór Arnar Hilmisson og Guðfinnur Þórir Ómarsson skoruðu báðir tvö mörk fyrir Þrótt í leiknum í gær en öll fimm mörk leiksins komu í seinni hálfleiknum. Sporttv sýndi leikinn í beinni og það er hægt að sjá mörkin með því að smella hér. Halldór Arnar skoraði fyrsta markið á 49. mínútu þegar hann slapp í gegn og lyfti boltanum skemmtilega yfir markvörðinn og Guðfinnur Þórir Ómarsson kom Þrótti í 2-0 eftir léttan dans í teignum. Guðmundur Magnússon minnkaði muninn úr víti á 68. mínútu en mínútu síðar skoraði Halldór sitt annað mark þegar hann skoraði með laglegum skalla eftir fyrirgjöf Hlyns Haukssonar. Guðfinnur Þórir skoraði síðan fjórða og síðasta markið á 82. mínútu eftir að hafa fengið flotta stungusendingu frá Sigmundi Kristjánssyni. Þróttur hefur nú nú unnið fjóra deildarleiki í röð þar af sigri á Víking Ólafsvík (1. sæti), Þór Akureyri (3. sæti) og Haukum (5. sæti) en þessum 12 stigum í fjórum leikjum eru Þróttararnir komnir upp í 4. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá 2. sætinu.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira