Fótbolti

FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gianni Infantino sést hér á blaðamannafundi í tengslum við heimsmeistaramótið en tekjur FIFA af mótinu voru stjarnfræðilegar.
Gianni Infantino sést hér á blaðamannafundi í tengslum við heimsmeistaramótið en tekjur FIFA af mótinu voru stjarnfræðilegar. EPA/ISAAC ESQUIVEL

Alþjóðaknattspyrnusambandið er sagt hafa halað inn gríðarlegar fjárhæðir á sölu miða á heimsmeistaramótið í Norður-Ameríku síðasta sumar.

Breska blaðið The Times hefur verið í sambandi við heimildarmenn sem greina frá því að heildarupphæðin hafi numið 3,8 milljörðum punda eða um 620 milljörðum íslenskra króna.

Samkvæmt blaðinu er það fimm sinnum meira en FIFA hafði upp úr miðasölu á HM í Katar árið 2022 og 1,7 milljónum dollara meira en FIFA hafði gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun sinni. Sú staðreynd að HM var stækkað úr 32 liðum í 48 stuðlaði að auknum tekjum miðað við fyrir fjórum árum.

Miðasölukerfið á HM í ár sætti mikilli gagnrýni. Auk þess sem FIFA beitti breytilegri verðlagningu, sem gerði miða á vinsæla leiki mjög dýra, fékk FIFA einnig sneið af kökunni þegar fólk notaði endursöluvettvanginn.

Stuðningsmannahópar hafa gagnrýnt verðið og Football Supporters Europe kallaði aðgerðina „fjárkúgun“ og „gríðarleg svik“.

„Við komum úr menningu þar sem við viljum ekki að verðið sé þannig að aðeins þeir stuðningsmenn sem fylgja ekki liðinu í gegnum súrt og sætt fái að standa í fremstu röð. Það tengist auðvitað fjárhag. Eitt er uppblásið verð, annað er hvaða áhorfendur maður vill að fótboltinn laði að sér,“ sagði Lise Klaveness, formaður norska knattspyrnusambandsins, við norsku NTB-fréttastofuna fyrir mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×