Handbolti

Arna Sif með flottan leik í sigri á SönderjyskE

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arna Sif Pálsdóttir.
Arna Sif Pálsdóttir. Mynd/Stefán
Landsliðslínumaðurinn Arna Sif Pálsdóttir skoraði sex mörk fyrir Aalborg DH í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann fjögurra marka heimasigur á SönderjyskE, 31-27. Þetta var langþráður sigur hjá Álaborgarliðinu því liðið var stigalaust fyrir leikinn.

Það var bara danska landsliðskonan Stine Jörgensen sem skoraði meira en Arna Sif í leiknum en hún var með átta mörk fyrir Aalborg DH í þessum leik. Rikke Ebbesen skoraði síðan sex mörk eins og Arna Sif.

Aalborg DH var 17-13 yfir í hálfleik og náði mest átta marka forskoti í seinni hálfleiknum, 25-17. SönderjyskE minnkaði muninn í lokin en komst aldrei nær en fjögur mörk.

Aalborg DH tapaði þremur fyrstu leikjum sínum í dönsku deildinni á móti Tvis Holstebro, Randers HK og Slagelse FH en SönderjyskE-liðið var búið að ná í 4 stig í fyrstu þremur umferðunum og hafði ekki tapað leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×