Íslensku landsliðskonurnar í tapliðum í sænsku deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2012 11:45 Stelpurnar voru ekki svona brosmiklar eftir leiki sína í dag. Mynd/Daníel
Íslendingaliðin Kristianstad og Örebro töpuðu bæði leikjum sínum í sænsku kvennadeildinni í fótbolta í dag en þetta voru fyrstu leikirnir í sænsku úrvalsdeildinni eftir landsleikjahlé. Stelpurnar hennar Elísabetar Gunnarsdóttur í Kristianstads DFF urðu að sætta sig við 0-3 tap á útivelli á móti Kopparbergs/Göteborg FC en liðin voru fyrir leikinn jöfn að stigum í fjórða og fimmta sæti deildarinnar. Margrét Lára Viðarsdóttir, Katrín Ómarsdóttir og Sif Atladóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad í dag en tókst ekki frekar en félögum þeirra að koma í veg fyrir að Anna Ahlstrand kom Kopparbergs/Göteborg í 1-0 á 27. mínútu. Christen Press bætti sóðan við öðru marki á 72. mínútu og Yael Averbuch innsiglaði síðan sigur Kopparbergs/Göteborg á 89. mínútu. Edda Garðadóttir og félagar í Örebro urðu að sætta sig við 2-3 tap á heimavelli á móti Linköping en Örebro þurfti nauðsynlega á stigum að halda í fallbaráttunni. Edda lék allan leikinn með Örebro og krækti sér í eitt gult spjald í fyrri hálfleik. Örebro komst yfir á móti Linköping eftir hálftíma en fékk síðan tvö mörk á sig með þriggja mínútna millibili og var 1-2 undir í hálfleik. Örebro jafnaði leikinn aftur í seinni hálfleik en sjö mínútum síðar tryggði Mariann Gajhede Knudsen Linköping öll þrjú stigin.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira