Gunnar Heiðar með stórleik - skoraði tvö og lagði upp tvö Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. október 2012 18:52 Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Gunnar Heiðar Þorvaldsson átti flottan leik í kvöld þegar lið hans IFK Norrköping fór illa með GAIS í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Gunnar Heiðar skoraði tvö mörk sjálfur og lagði síðan upp tvö önnur mörk fyrir félaga sína. Norrköping vann leikinn á endanum 7-2. IFK Norrköping fór upp í fimmta sætið með þessum sigri en liðið er sex stigum á eftir Malmö sem er í sætinu fyrir ofan. Gunnar Heiðar skoraði fyrsta mark leiksins á 12. mínútu og Norrköping var síðan 4-1 yfir í hálfleik eftir að Gunnar lagði upp mark fyrir Nikola Tkalcic tveimur mínútum fyrir hálfleik. Gunnar Heiðar átti síðan einnig mikinn þátt í fimmta markinu í upphafi seinni hálfleiks sem var sjálfsmark hjá GAIS. Gunnar Heiðar skoraði síðan sjötta mark Norrköping og annað mark sitt á 64. mínútu leiksins. Gunnar Heiðar hefur þar með skorað 13 mörk í 24 leikjum með Norrköping á þessu tímabili en hann skoraði tvö mörk í leiknum á undan þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við AIK Solna. Eyjamaðurinn er því búinn að skora tvennu í tveimur leikjum í röð. Gunnar Heiðar er þar með kominn fram úr Alfreð Finnbogasyni sem skoraði 12 mörk í 17 leikjum með Helsingborg áður en hann fór til Heerenveen í Hollandi. Báðir eru þeir í hópi markahæstu leikmanna sænsku deildarinnar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira