Enski boltinn

Reina og Shelvey klárir í slaginn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hefur staðfest að þeir Pepe Reina og Jonjo Shelvey geti spilað á ný um helgina. Þá er Lucas byrjaður að æfa á nýjan leik.

Markvörðurinn Reina hefur verið frá í nokkrar vikur vegna meiðsla í nára en Lucas hefur ekkert spilað síðan í ágúst. Hann hefur verið að glíma við meiðsli í læri.

„Nokkrir leikmenn sem hafa verið frá eru byrjaðir að æfa aftur. Það eru góðar fréttir," sagði Rodgers í viðtali á heimasíðu Liverpool.

„Það er frábært að fá Lucas til baka. Hann hefur lagt mikið á sig í endurhæfingunni og hann kemur því tvíefldur til baka. Hann mun ekki spila um helgina en hann gæti verið klár á næstu vikunum."

„Jonjo er klár fyrir helgina og Pepe var mjög nálægt því að ná leiknum gegn Chelsea um helgina."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×