Solskjær aftur Noregsmeistari með Molde Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. nóvember 2012 19:14
Molde varð í dag Noregsmeistari í knattspyrnu annað árið í röð. Knattspyrnustjóri liðsins er Ole Gunnar Solskjær, fyrrum leikmaður Manchester United. Tveir Íslendingar skoruðu í norsku úrvalsdeildinni í dag. Molde vann 1-0 sigur á Hönefoss en Strömsgodset tapaði á sama tíma fyrir Sandnes Ulf. Munurinn á liðunum er nú fjögur stig þegar ein umferð er eftir. Solskjær hefur verið ítrekað orðaður við lið á Englandi og ljóst að hann verður líklega enn eftirsóttari eftir þessa niðurstöðu. Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Kristján Örn Sigurðsson spiluðu allan leikinn í liði Hönefoss. Steinþór Freyr Þorsteinsson var í byrjunarliði Sandnes Ulf en Arnór Ingi Traustason kom inn á sem varamaður hjá liðinu. Óskar Örn Hauksson sat á bekknum. Stabæk hafði betur gegn Sogndal, 2-1. Veigar Páll Gunnarsson lagði upp fyrra mark Stabæk og Bjarni Ólafur Eiríksson skoraði það síðara. Elfar Freyr Helgason var ónotaður varamaður í leiknum. Pálmi Rafn Pálmason var einnig á skotskónum en hann skoraði sigurmark Lilleström gegn Vålerenga. Leiknum lauk með 2-1 sigri Lilleström en Pálmi Rafn spilaði allan leikinn. Birkir Már Sævarsson spilaði allan leikinn fyrir Brann sem tapaði fyrir Tromsö, 2-0. Haugesund vann Viking, 1-0. Andrés Már Jóhannesson spilaði allan leikinn fyrir Haugesund og Indriði Sigurðsson fyrir Viking. Viking er í fimmta sæti deildarinnar, Brann í sjötta sæti, Haugesund í sjöunda, Lilleström í níunda, Hönefoss í tólfta, Sandnes Ulf í þrettánda og Stabæk sem fyrr í neðsta sæti.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Mark ársins í Bestu deildinni komið? Íslenski boltinn ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Íslenski boltinn Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sport Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Yamal felldi tár en ætti að ná HM Fótbolti Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Fótbolti „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Lykilmaðurinn“ Kolbeinn úr leik næstu vikurnar Þór Ak. - Fram | Vígja nýjan völl Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Yamal felldi tár en ætti að ná HM Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Búið spil hjá Tómasi sem þarf að treysta á félaga sína til að ná titlinum Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Sex vítaspyrnur fóru forgörðum í taugatrekkjandi undanúrslitaleik Börsungar færast nær titlinum Í fyrsta sinn í úrslitaleikinn síðan 2020 ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans Haaland skaut Manchester City á toppinn „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Bikarþynnka herjaði á Orra og Real Sociedad Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Lærisveinar Freys komnir í úrslitaleik norska bikarsins Glódís Perla þýskur meistari fjórða árið í röð Ísland með Evrópumeisturunum í riðli á EM Rosenior rekinn frá Chelsea Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum Guðný fæddi boltabarn níu mánuðum eftir EM Sjá meira