Leikmenn í NFL-deildinni farnir að nota Viagra 29. nóvember 2012 23:15 Brandon Marshall hress.
Ólögleg lyfjanotkun í NFL-deildinni er engin nýlunda en leikmenn deildarinnar eru farnir að ganga ansi langt í því að bæta árangur sinn á vellinum. Í vetur hafa þrír leikmenn fallið á lyfjaprófi og þar af einn fyrir að nota lyfið Adderall. Það er meðal annars gefið fólki með ADHD. Amfetamín er í lyfinu þannig að leikmenn mega ekki nota það. Brandon Marshall, útherji Chicago Bears, segir að það sé orðin bilun hvað leikmenn séu að gera þessa dagana. "Ég veit nú ekki mikið um Adderall en ég veit að sumir af strákunum í deildinni eru svo kappsamir að þeir gera allt til þess að verða aðeins beittari og skarpari. Ég er sem betur fer nógu stór og gáfaður til að láta allt slíkt eiga sig," sagði Marshall við Chicago Tribune. "Sumir gera allt. Ég hef heyrt margar brjálaðar sögur. Í fullri alvöru hef ég heyrt af mönnum sem nota Viagra. Menn verða að fara að passa sig." Viagra er stinningarlyf eins og flestir ættu að vita. Það hefur þó verið sannað að það geti hjálpað íþróttamönnum á ýmsan hátt. Meðal annars varðandi úthald. Það getur þó haft sína augljósu ókosti en leikmenn deildarinnar spila allir með punghlíf þannig að erfitt getur verið að greina hver hafi fengið sér viagra fyrir leik og hver ekki.
NFL Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Sjá meira