Tíu handteknir þegar Bröndby lagði Rúrik og félaga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. nóvember 2012 09:21
Tíu stuðningsmenn voru handteknir og einn slasaðist eftir að áhorfendur þustu inn á Bröndby-leikvanginn í Kaupmannahöfn að loknum sigri heimamanna á FC Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Grannliðin eru miklir erkifjendur og var hart barist þrátt fyrir að Bröndby sé í næstneðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar en FCK í því efsta. Markalaust var að loknum venjulegum leiktíma en heimamenn skoruðu sigurmarkið strax á fyrstu mínútu í framlengingu og ætlaði allt um koll að keyra á Bröndby-leikvanginum. Þegar dómarinn blés til leiksloka ærðust heimamenn og hlupu sem leið lá inn á völlinn. Markmiðið var að stuða stuðningsmenn gestanna að mati rannsóknarlögreglumannsins Michael Kristiansen. „Sorglegur eftirmáli leiksins var sá að þúsundir stuðningsmanna Bröndby hlupu inn á völlinn. Tilgangurinn var að láta stuðningsmenn gestanna finna til tevatnsins," sagði Kristiansen. Þeir sem höfðu sig mest í frammi og brutu reglur er varða flugelda voru handteknir. „Þetta er til skammar og óásættanlegt. Þróunin er ekki góð. Ég fordæmi þessa hegðun," sagði Emil Bakkendorf yfirmaður öryggisgæslu hjá Bröndby. Rúrik Gíslason var í byrjunarliði gestanna, Ragnar Sigurðsson á bekknum en Sölvi Geir Ottesen utan hóps.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira