Handbolti

Mikilvægt fyrir þjóðina að sagan sé skráð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fyrsta eintakið. Ólafur Ragnar Grímsson tók við fyrsta eintaki bókarinnar úr hendi Júlíusar Hafstein, heiðursformanns HSÍ.Fréttablaðið/Ernir
Fyrsta eintakið. Ólafur Ragnar Grímsson tók við fyrsta eintaki bókarinnar úr hendi Júlíusar Hafstein, heiðursformanns HSÍ.Fréttablaðið/Ernir
„Það er ekki bara mikilvægt fyrir HSÍ heldur fyrir Ísland sem þjóð að skrá þessa merku sögu. Handboltinn er svo greiptur í þjóðarsálina hjá okkur og gaman að geta gengið að sögunni frá upphafi fram á síðustu daga sem eru glæstir," segir Knútur Hauksson formaður Handknattleikssambands Íslands en saga íþróttarinnar á Íslandi síðustu 90 árin er komin á prent.

Ritið, sem er í tveimur bindum, er tæplega 900 síðar prýddar fjölda mynda frá upphafi íþróttarinnar sem rakið er til ársins 2010. Forseti Íslands tók við fyrsta eintakinu úr hendi Júlíusar Hafstein, heiðursformanns HSÍ, sem hélt utan um verkefnið. Steinar J. Lúðvíksson er ritstjóri verksins sem er fjármagnað af Formannafélagi HSÍ sem samanstendur af fyrrum formönnum auk núverandi formanns sambandsins.

Hugmyndin að bókinni kviknaði fyrir áratug en vinna við verkið spannar sex ár. Júlíus segir undirbúning bókarinnar ekki hafa verið neinn hausverk. Menn hafi aðeins þurft að skilja og taka þá ákvörðun að flýta sér hægt. Erfitt hafi þó verið að nálgast ljósmyndir fram til ársins 1960.

„Það fara ekki að koma almennilegar myndir frá handboltanum fyrr en við náum sjötta sæti á HM 1961. Eftir að kvennalandsliðið varð Norðurlandameistari árið 1964 fjölgaði myndum enn frekar. Þetta var mikill árangur á þeim tíma og í kjölfarið var aðgengi að góðum myndum betra," segir Júlíus og bætir við að Formannafélagið muni áfram aðstoða HSÍ og koma að verkum þar sem hjálpar er óskað.

Það er bókaútgáfan Hólar sem gefur bókina út og verður henni á næstu dögum dreift til áskrifenda. Í kjölfarið verður hún fáanleg í helstu bókabúðum landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×