Skeggjaðar klappstýrur halda uppi merkjum Sónar Reykjavík 16. janúar 2013 18:00
Skeggjaðar klappstýrur bera hitann af því að breiða út hreiður tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík sem verður haldin í Hörpu í febrúar. Hátíðarhaldarar hafa verið duglegir að setja kynningarmyndbönd á netið fyrir hátíðina og kláruðu í dag nýtt myndband af klappstýrunum sem sjá má hér fyrir ofan. Áður hafa skeggjuðu dömurnar sést í upphafi kynningarátaksins fyrir hátíðina. Einnig skeggjuð klappstýra sem dansar ein síns liðs. Mikill spenningur er að myndast fyrir Sónar Reykjavík, sem fer fram 15. og 16. febrúar. Um 250 manns eru búnir að kaupa miða erlendis frá og einnig hafa um þrjátíu erlendir blaðamenn boðað komu sína á hátíðina, meðal annars frá The Guardian, The Sunday Times og NME. Enn eru til miðar á Sónar fyrir Íslendinga en takmarkað magn er eftir. Hægt er að nálgast þá á midi.is. Notast verður við fjögur svið í Hörpu og verður spilað á þeim samtímis. Auk tveggja aðalsviða í Silfurbergi og Norðurljósum verður hluta af bílastæðinu í kjallara Hörpunnar breytt í næturklúbb þar sem hinir ýmsu plötusnúðar halda uppi stemningu. Eitt svið til viðbótar verður svo sett upp í Flóahorninu á fyrstu hæð Hörpunnar. 50 listamenn koma fram á þessum tveimur dögum. Dagskráin hefst báða dagana klukkan 18 og stendur yfir til klukkan þrjú um nóttina. Meðal þeirra sem koma munu fram eru James Blake, Squarepusher, Alva Noto & Ryuichi Sakamoto, Modeselektor, GusGus, Retro Stefson, Ólafur Arnalds og Gluteus Maximus. Fleiri listamenn, hljómsveitir og plötusnúðar verða kynntir á næstu vikum en alls munu um 20 erlend atriði verða á Sónar Reykjavík ásamt um 30 íslenskum atriðum.
Sónar Tónlist Mest lesið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Fleiri fréttir Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira