Topplaus og dónalega kraftmikill Bentley 15. janúar 2013 17:00 Fagur sýnum í himinbláu
Bentley tókst að minnka eyðslu og mengun GT Speed um 15% Enn halda þeir áfram að birtast nýju og flottu bílarnir á bílasýningunni í Detroit sem stendur yfir. Einn þeirra eigulegastur hlýtur að teljast þessi blæjuútgáfa af Bentley GT Speed. Í húddinum leynist 12 strokka og 6 lítra sleggja sem sér hjólunum fyrir 616 hestöflum að fíflast í malbikinu. Með þeim getur hann reyndar ferðast á því á 325 km ferð. Þá er líklega betra að vera búinn að loka blæjunni eða að minnsta kosti taka af sér hattinn. Þessi annars nokkuð þungi sleði er ekki nema 4,1 sekúndu í hundrað og 9,7 sek. Í 160 km hraða. Tog vélarinnar nemur 800 Newtonmetrum. Til að hressa örlítið uppá útlit bílsins er hann á 21 tommu felgum. Blæja bílsins hefur verið prófuð í allt að 30 stiga frosti og 50 stiga hita og þolið það bæði jafnvel, sem og monsúnrigningar og fyrir vikið á farþegum allsstaðar að líða eins.... það er vel.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent