Innlent

Þreytast ekki á að tuða yfir veginum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Bændurnir á Sauðadalsá, þau Þormóður Ingi Heimisson og Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir.
Bændurnir á Sauðadalsá, þau Þormóður Ingi Heimisson og Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir. Egill Aðalsteinsson

Eitt virðast Vatnsnesingar eiga sameiginlegt. Þeir þreytast ekki á að tala um malarveginn um Vatnsnes. Vegagerðin hefur núna kynnt áætlun um að ljúka lagningu bundins slitlags á Vatnsneshringinn á næstu átta árum.

Í þættinum „Um land allt“ á Sýn+ í kvöld förum við í Húnaþing vestra. Við ökum hringinn um Vatnsnes til að kynnast mannlífi og náttúru svæðisins.

Við ökum á bundnu slitlagi að Hvammstanga en síðan áfram norður Vatnsnes og njótum þess að vera næstu kílómetrana á nýlegum malbikskafla. En svo tekur við gamli malarvegurinn með öllum sínum holum, beygjum og blindhæðum.

Malbikið endar núna tíu kílómetrum norðan Hvammstanga. Síðan taka við yfir sextíu kílómetrar af malarvegi.Egill Aðalsteinsson

„Við erum nú búin að berjast mikið fyrir umbótum á vegakerfi hér í mörg, mörg ár,“ segir Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir, bóndi á Sauðadalsá og aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Húnaþings vestra.

„Fengum svo sem búbót í fyrra þegar var opnaður hérna nýr sjö kílómetra kafli. En það er hellingur eftir og þetta er auðvitað orðið bara mjög langþreytt ástand. 

En við erum inni á samgönguáætlun. Þannig að vonandi bara.. - já, maður allavegana þreytist ekki á því að tuða yfir þessu, nýtir hvert tækifæri,“ segir Guðrún Ósk hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:

Og rétt eins og var í gamla daga þá telst koma veghefilsins enn til mestu gleðigjafa á Vatnsnesi. Á kirkjustaðnum Tjörn nefna bændur einnig veginn sem það helsta sem plagar íbúana.

„Já, það eru allir mjög þreyttir á veginum,“ segir Olga Lind Geirsdóttir.

„Og það þýðir eiginlega ekki annað, hann er svo leiðinlegur,“ segir Baldur Heimisson.

Þau segja miklu muna um hvern kílómetra sem er malbikaður.

Bændurnir á Tjörn á Vatnsnesi, þau Olga Lind Geirsdóttir og Baldur Heimisson.Egill Aðalsteinsson

Þegar ferðamenn beygja af hringveginum í átt að Hvítserk og Vesturhópi tekur einnig við langur malarvegur. Fjölskyldan í Böðvarshólum er sömuleiðis orðin langþreytt á ástandinu:

„Það tala allir um þennan veg, já,“ segir Jón Ben Sigurðsson.

„Það er löngu kominn tími á að laga hann. Hann er sem betur fer ennþá inni á samgönguáætlun og við vonumst bara til þess að hann verði kláraður,“ segir Ingveldur Ása Konráðsdóttir.

Jón Ben Sigurðsson og Ingveldur Ása Konráðsdóttir eru bændur í Böðvarshólum. Egill Aðalsteinsson

„Enda traffíkin hérna er yfir sumarið og fram á haustið alveg gríðarleg. Þetta voru 140 til 150 þúsund manns sem fóru niður að Hvítserk í fyrra. Þannig að vegurinn náttúrulega þolir þetta engan veginn. Þetta eru bæði litlir bílar og stórar rútur sem eru hérna á ferðinni,“ segir Jón Ben.

Fáir þekkja ástandið betur en ferðaþjónustubóndinn á jörðinni Ósum við Hvítserk.

„Það er nefnilega alveg svakalega mikil umferð um Vatnsnesið. Ég hugsa að gæti verið 150 þúsund manns sem eru að heimsækja Hvítserk yfir sumartímann. Það er alveg rosalega mikil umferð,“ segir Knútur Arnar Óskarsson, bóndi á Ósum.

Knútur Arnar Óskarsson er ferðaþjónustubóndi á Ósum á Vatnsnesi.Egill Aðalsteinsson

Hann vonast til að fljótlega verði farið að byggja upp Vatnsnesveginn.

„Hann er stærsta vandamálið. Hann er engan veginn að bera þessa umferð, svo langt frá því,“ segir Knútur.

„Maður skilur stundum ekki alveg forgangsröðunina í vegaframkvæmdum á Íslandi. Af því núna eru bara mjög mörg grunnskóla- og leikskólabörn hérna á svæðinu sem að þurfa að fara þennan veg.

Og manni finnst svolítið leiðinlegt að það sé ekki í rauninni meiri metnaður að laga samgöngurnar þeirra vegna,“ segir Guðrún Ósk aðstoðarskólastjóri.

Vegheflinum er fagnað á Vatnsnesi.Egill Aðalsteinsson

Vegagerðin kynnti í haust áætlun um endurbyggingu Vatnsnesvegar með bundnu slitlagi á næstu átta árum. Samkvæmt henni verður farið í tíu kílómetra kafla í Vesturhópi á næsta og þarnæsta ári, 2027 og 2028. Á árunum 2029 og 2030 verður slitlag lagt á annan tíu kílómetra kafla meðfram Vesturhópsvatni.

Síðan verður farið í sjö kílómetra kafla á vestanverðu Vatnsnesi milli Skarðs og Bergstaða á árunum 2030 til 2031. Fjórði áfanginn, á árunum 2031 til 2032, verður tólf kílómetra kafli meðfram Sigríðarstaðavatni og norður fyrir Hvítserk.

Kaflinn um nyrsta hluta Vatnsness framhjá Illugastöðum og Tjörn, alls 22 kílómetrar, er áætlaður á árunum 2032 til 2034. Sex kílómetra tengivegur milli Vesturhóps og hringvegarins í Víðidal er svo á dagskrá á árunum 2033 til 2034.

Vegagerðin hefur kynnt áætlun um að endurbyggja Vatnsnesveg í sex áföngum á næstu átta árum.Hjalti Freyr Ragnarsson

Alls eru þetta um 67 kílómetrar og er heildarkostnaður áætlaður um 7,5 milljarðar króna.

Við fjöllum meira um samfélagið á Vatnsnesi í þættinum „Um land allt“ klukkan 19:20 í kvöld, miðvikudagskvöld, á Sýn+.

Sýnishorn úr fleiri þáttum má sjá hér:


Tengdar fréttir

Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk

Undirbúningur er hafinn að því að stórbæta aðstöðu ferðamanna við klettinn Hvítserk, helsta aðdráttarafl Húnaþings. Reisa á þjónustuhús, leggja göngustíga og smíða tröppur og verða bílastæðagjöld meðal annars nýtt til að standa undir kostnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×