Brynvarin lúxuskerra 10. janúar 2013 10:37
Toyota Sequoia jeppi er ekki líklegast bíllinn til að vera brynvarinn og þola handsprengjur, jarðsprengjur og öflugustu rifla. Líklegra er að slíkir bílar séu þýskir eða bandarískir eðalvagnar. Eigandi þessa bíls vill einmitt ekki að það standi stórum stöfum utan á honum að þar fari einhver sem efni hefur á því að gæta fyllsta öryggis með eigið líf og annarra farþega. Ekki var þó meiningin að láta sér líð illa um borð í Toyotunni og því var bíllinn innréttaður á þennan boðlega hátt. Þar má finna vínkæla, stóran LCD flatskjá og inní bílnum má fylgjast með öllu umhverfinu kringum bílinn gegnum mýmargar faldar myndavélar. Sætin eru úr hágæða leðri og innréttingin alsett fallegum viði. Það læðist að sú tilfinning að eigandi bílsins sé með vott af ofsóknarbrjálæði. Það er fyrirtækið Lexani Motorcars sem fengið var til verksins og sérhæfir sig í svona breytingum. Herlegheitin má betur virða fyrir sér í meðfylgjandi myndbandi.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent