Formúla 1

Glock og Kubica reynsluóku fyrir DTM

Birgir Þór Harðarson skrifar
Glock leið vel í bílstjórasæti BMW-bílsins.
Glock leið vel í bílstjórasæti BMW-bílsins. mynd/bimmertoday
Þjóðverjinn Timo Glock hafði BMW M3 DTM-bíl til reynslu í Barcelona í dag en sagði á dögunum skilið við Formúlu 1. Glock fær ekki að aka fyrir Marussia í Formúlu 1 í ár og viðraði strax áhuga sinn á þýska götubílakappakstrinum.

Enn er eitt sæti laust í liði BMW fyrir keppnistímabil ársins en hann gæti ekið við hlið meistara síðasta árs, Bruno Spengler hjá BMW Team Schnitzer í ár.

„Fyrstu kynni mín af DTM voru mjög góð," sagði Glcok við fjölmiðla eftir reynsluaksturinn. „Það tók mig ekki langan tíma að kynnast bílnum og mér leið fljótt vel í honum."

Robert Kubica reynsluók Mercedes-bíl við sama tilefni í Barcelona í dag. Hann hefur verið í stöðugri endurhæfingu síðan hann náði heilsu eftir slysið sem hann lenti í fyrir tveimur árum í rallýkeppni á Ítalíu. Þá var hann ökuþór Renault í Formúlu 1.

Kubica ók 114 hringi í Barcelona og sagðist hafa liðið vel í bílnum og ekki kvartaði hann undan eymslum í hendinni. „Ég er mjög sáttur með árangur minn í dag og ég átti ekki í neinum erfiðleikum í bílnum," sagði Kubica.

Toto Wolff, nýráðinn mótorsportstjóri Mercedes, sagði Kubica ekki enn vera fullkomlega heilan en var ánægður með að geta gefið honum tækifæri í kappakstursbíl með niðurtogi.

(Uppfært 25. janúar)

Timo Glock hefur verið ráðinn áttundi ökuþór BMW í DTM fyrir árið 2013. Þetta var staðfest í dag, föstudag.

Robert Kubica var í fínu formi í Barcelona. Hann er þó ekki 100% heill.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×