Formúla 1

Caterham og Marussia frumsýndu keppnisbílana

Birgir Þór Harðarson skrifar
Charles Pic og Giedo van der Garde afhjúpuðu Caterham-bílinn á brautinni í Jerez í dag.
Charles Pic og Giedo van der Garde afhjúpuðu Caterham-bílinn á brautinni í Jerez í dag. nordicphotos/afp
Botnliðin tvö, Caterham og Marussia, frumsýndu keppnisbíla sína á Jerez-brautinni í dag áður en fyrstu æfingar undirbúningstímabilsins hófust þar í morgun. Bæði lið fylgja sömu línum og þau notuðu í fyrra.

Ökumenn Caterham-liðsins í Formúlu 1 í sumar verða þeir Charles Pic og Giedo van der Garde. Pic ók fyrir Marussia í fyrra en van der Garde mun þreyta frumraun sína í mótaröðinni þegar ljósin slökkna í Ástralíu eftir rúman mánuð. Hann var reynsluökuþór Caterham í fyrra.

Van der Garde ók Caterham-bílnum á æfingunum í dag og varð næst síðastur á undan Marussia-bíl Max Chilton.

Hjá Marussia er enn eitt keppnissæti laust fyrir vertíðina sem senn fer í hönd. Max Chilton mun aka öðrum keppnisbílnum á tímabilinu. Hann ók á æfingunum í dag fyrir Marussia og var langsíðastur, 5 sekúndum á eftir Jenson Button á McLaren og rúmum tvemur sekúndum hægari en van der Garde.

Marussia-liðið virðist því hefja undirbúninginn á hælunum og þurfa að skoða sín mál grandlega í kvöld og í nótt áður en æfingarnar halda áfram á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×