Formúla 1

Razia rekinn til að koma Bianchi að

Birgir Þór Harðarson skrifar
Bianchi mun aka í Formúlu 1 í sumar eftir allt saman.
Bianchi mun aka í Formúlu 1 í sumar eftir allt saman.
Luiz Razia hefur verið sagt upp sem keppnisökuþór Marussia-liðsins í Formúlu 1. Aðeins mánuður er síðan hann var kynntur sem annar ökuþór þerra við hlið Bretans unga Max Chilton. Jules Bianchi mun taka sæti Razia keppnistímabilið 2013.

"Ég er í sjokki," sagði Razia í fyrsta viðtalinu eftir að hafa fengið fréttirnar en aðal styrktaraðili hans stóð ekki í skilum við Marussia-liðið. Razia var því sagt upp og Marussia ákvað að tryggja sér þjónustu Bianchi sem fékk ekki keppnissæti hjá Force India eftir slag um það við Adrian Sutil.

Razia segist ekki vera reiður liðinu en að styrktaraðilinn hafi valdið sér vonbrigðum. "Ég gerði allt rétt en þessar aðstæður urðu til þess að svona fór."

Bianchi fær ekki mikinn tíma til að koma sér fyrir í Marussia-bílnum því hann þarf að aka heilan æfingadag með liðinu á morgun, laugardag.

Marussia hafði einnig samband við indverska ökuþórinn Narain Karthikeyan þegar ljóst var að Razia gæti ekki ekið í sumar en valdi Bianchi frekar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×