Formúla 1

Vettel langfljótastur í tímatökum í Malasíu

Birgir Þór Harðarson skrifar
Vettel á fullri ferð.
Vettel á fullri ferð.
Sebastian Vettel ók hraðast allra umhverfis Sepang-brautina í Malasíu í morgun þegar tímatökur fóru fram fyrir kappaksturinn þar í landi. Red Bull-lið Vettels var í vandræðum í fystu tveimur lotum tímatökunnar áður en það fór að rigna og síðasta lotan var ekin í bleytu.

Vettel var næst síðastur upp úr fyrstu lotu tímatökunnar og rétt slapp við að fá ekki að fara áfram. Mark Webber var í svipuðum vandræðum þó hann hafi verið örlítið fljótari.

Felipe Massa á Ferrari ræsir annar í kappakstrinum og Fernando Alonso þriðji. Þá setti Lewis Hamilton á Mercedes-bíl fjórða besta tíma og Webber fimmta besta.

Rigningin kom liðunum örlítið á óvart undir lok annarar lotu tímatökunnar. Paul di Resta þurfti til dæmis að berjast fyrir lífi sínu á brautinni á meðan hún var að verða blautari og blautari. Hann komst ekki upp úr annari lotu. Það gerði liðsfélagi hans hjá Force India, Adrian Sutil, en hann réð ekki við stóru strákana í síðustu lotu og ræsir níundi

Kimi Raikkönen verður sjöundi á ráslínunni á undan McLaren bílunum og Sutil. Jenson Button verður áttundi og Sergio Perez tíundi.

Búist er við rigningu í Malasíu á morgun þegar kappaksturinn fer fram svo búast má við fjörugum kappakstri og óvæntum úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×