Handbolti

Þorkell Guðbrandsson tekur við kvennaliði Aftureldingar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorkell í leik með Aftureldingu.
Þorkell í leik með Aftureldingu. Mynd: Hilmar Þór / sport.is
Þorkell Guðbrandsson tekur við kvennaliði Aftureldingar af Gústafi Björnssyni og mun hann stýra liðinu í N1-deildinni á næsta tímabili.

Sem leikmaður lék Þorkell í mörg ár með karlaliði Aftureldingar og hefur mikla þekkingu á íþróttinni.

Hann hefur einnig verið aðstoðarþjálfari karlaliðs Aftureldingar um þó nokkurt skeið.

Á fésbókarsíðu Aftureldingar kemur fram að tvær ungverskar handknattleikskonur séu á leiðinni til félagsins í vikunni og því ætlar liðið sé greinilega stóra hluti á næsta tímabili.

N1-deildin hefst 21. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×