Matthías sá sjötti sem skorar þrennu í norsku úrvalsdeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. september 2013 17:00 Matthías Vilhjálmsson.
Matthías Vilhjálmsson fór á kostum í 7-0 stórsigri Start á Sandnes Ulf í norsku úrvalsdeildinni í gær en Matthías skoraði þrennu í leiknum. Hann varð þar með sjötti Íslendingurinn sem nær að skora þrennu í norsku úrvalsdeildinni. Heiðar Helguson var sá fyrsti þegar hann skoraði fernu fyrir Lilleström í ágúst 1999 og þremur árum síðar bættist síðan Ríkharður Daðason í hópinn. Það liðu síðan fimm ár þar til að það fjölgaði í hópnum en þá skoruðu bæði Stefán Gíslason og Veigar Páll Gunnarsson þrennu. Veigar Páll er sá eini sem hefur skorað fleiri en eina þrennu en hann skoraði einnig þrjú mörk 2008 og 2010. Björn Bergmann Sigurðarson var síðan nýjasti meðlimurinn í þrennu-klúbbnum áður en Matthías bættist í hópinn í gær. Matthías Vilhjálmsson kom Start í 2-0 á 32. mínútu með skoti af vítateignum og skoraði síðan þriðja mark liðsins á 48. mínútu af stuttu færi. Matthías innsiglaði síðan þrennuna sína þegar hann kom Start í 5-0 með laglegu skallamarki á 58. mínútu. Það er hægt að sjá þrennuna hans Matthíasar með því að smella á tengilinn hér. Þrennur íslenskra leikmanna í norsku úrvalsdeildinni:1. ágúst 1999 Heiðar Helguson - ferna fyrir Lilleström á móti Stabæk25. ágúst 2002 Ríkharður Daðason - þrenna fyrir Lilleström á móti Start16. júní 2007 Stefán Gíslason - þrenna fyrir Lyn á móti Brann16. september 2007 Veigar Páll Gunnarsson - þrenna fyrir Stabæk á móti Odds BK26. október 2008 Veigar Páll Gunnarsson - þrenna fyrir Stabæk á móti Valerenga5. júlí 2010 Veigar Páll Gunnarsson - þrenna fyrir Stabæk á móti Molde13. maí 2012 Björn Bergmann Sigurðarson - þrenna fyrir Lilleström á móti Brann1. september 2013 Matthías Vilhjálmsson - þrenna fyrir Start á móti Sandnes Ulf
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira