Körfubolti

Rose fór á kostum í endurkomu sinni í United Center

Rose á gólfinu í nótt.
Rose á gólfinu í nótt.
Aðdáendur Chicago Bulls tóku gleði sína á ný í nótt er Derrick Rose spilaði sinn fyrsta heimaleik fyrir félagið í langan tíma. Þá voru liðnir 537 dagar síðan hann spilaði síðast í United Center.

Eftir frábærar móttökur mætti Rose grimmur inn á völlinn og skoraði átta stig á fyrstu átta mínútum leiksins.

Rose varð stigahæsti leikmaður vallarins með 22 stig á 22 mínútum. Hann kláraði sex af níu skotum sínum og setti niður níu af tíu vítaskotum.

Bulls vann leikinn gegn Detroit, 96-81. Miklar væntingar eru gerðar til Bulls í vetur þar sem fyrrum besti leikmaður deildarinnar er kominn aftur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×