Formúla 1

Rekja dauða Mariu til árekstursins í júlí 2012

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Maria De Villota.
Maria De Villota. Mynd/NordicPhotos/Getty
Spænska formúluökukonan Maria De Villota fannst látin í gær í hótelherbergi sínu í Seville á Spáni og samkvæmt nýjust fréttum frá Spáni þá rekja menn andlát hennar til árekstursins sem hún lenti í þegar hún var að reynslukeyra formúlu eitt bíl fyrir Marussia í júlí 2012.

De Villota missti hægra augað í slysinu og fékk mikið höfuðhögg í árekstrinum. Hún var núna í Sevilla að kynna nýja ævisögu sína "Life Is a Gift" sem er að koma út í þessum mánuði.

Formúla eitt mun minnast Mariu De Villota í tengslum við Japanskappaksturinn sem fer fram ó nótt. Mínútuþögn verður á  kappakstrinum og verðlaunapallurinn verður auk þess tileinkaður Mariu.

De Villota var dóttir formúlu eitt ökukappans Emilio De Villota.

De Villota keppti í kappakstri í tólf ár og keyrði fyrst formúlu eitt bíl fyrir Lotus Renault fyrir tveimur árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×