Tvö mörk frá Torres og Chelsea upp í toppsæti riðsilsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2013 18:15 Mynd/NordicPhotos/Getty
Fernando Torres var í byrjunarliði Chelsea í hundraðasta skiptið í kvöld og hélt upp á það með því að skora tvö mörk í 3-0 útisigri á þýska liðinu Schalke 04 í E-riðli Meistaradeildarinnar í fótbolta. Schalke 04 var með fullt hús og hreint mark eftir tvær fyrstu umferðirnar en Chelsea-menn tóku toppsæti riðilsins af Þjóðverjunum með þessum sigri. Fernando Torres var búinn að koma liði sínu í 1-0 eftir fimm mínútna leik þegar hann skoraði með skalla eftir að Branislav Ivanovic skallaði áfram hornspyrnu Frank Lampard. Chelsea fékk draumabyrjun í leiknum en náði ekki að fylgja því efir og leikmenn Jose Mourinho gengu fegnir til hálfleiks ennþá 1-0 yfir. Torres var nálægt því að byrja seinni hálfleikinn alveg eins og þann fyrri þegar hann átti skalla í slá á 51. mínútu eftir aukaspyrnu frá Frank Lampard. Fernando Torres bætti síðan við sínu öðru marki á 68. mínútu þegar hann skoraði auðveldlega eftir skyndisókn og undirbúning þeirra Oscar og Eden Hazard. Eden Hazard innsiglaði sigurinn á 87. mínútu eftir sendingu frá Ramires og Chelsea hefur nú unnið tvo síðustu leiki sína í Meistaradeildinni með markatölunni 7-0.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira