Styrkveitingar efldar hjá ÍSÍ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2013 08:00 81 milljón til afrekstarfs Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, fer yfir styrkveitingar úr Afrekssjóði ÍSÍ þetta árið. Sitjandi eru Örn Andrésson, formaður Afrekssjóðs ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ.fréttablaðið/valli
Úthlutað var í gær úr Afrekssjóði ÍSÍ og Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna fyrir árið 2013. Styrkirnir til afreksíþróttamanna hækka auk þess sem áherslum var breytt í styrkveitingunni. 21 afreksíþróttamaður fékk í gær úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ fyrir árið 2013, þar af fengu fimm A-styrk. Framlag ríkissjóðs í Afrekssjóðinn hefur hækkað í 55 milljónir króna en var áður 34,7 milljónir króna. Að auki er Afrekssjóður ÍSÍ fjármagnaður með hlutdeild íþróttahreyfingarinnar í tekjum Íslenskrar Getspá. Gera má ráð fyrir að það sé um það bil til jafns við framlag ríkissjóðs. Stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ ákvað því að hækka svokallaða A- og B-styrki um 40 þúsund krónur og C-styrk um 20 þúsund krónur. Alls eru fimmtán einstaklingar á slíkum styrkjum en sex á eingreiðslustyrk úr sjóðnum. Afrekssjóðurinn úthlutar samtals tæplega 72 milljónum króna og þá mun Styrktarsjóður ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna úthluta tíu milljónum í ár. Þeir íþróttamenn sem fá styrk úr sjóðnum geta notað hann fyrst og fremst til að fá endurgreiddan útlagðan kostnað vegna þátttöku þeirra á mótum og undirbúningi vegna þeirra. Styrkurinn er því ekki ætlaður til daglegrar framfærslu íþróttafólksins. „Styrktarupphæðir hækka nú í fyrsta sinn um langt skeið," sagði Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, á blaðamannafundi í Laugardalnum í gær. „Þetta hljómar ekki eins og háar fjárhæðir og eru það heldur ekki. Þær eru aðeins ætlaðar til að sjá fyrir grunnkostnaði og er ekki hægt að flokka þetta sem laun." Einnig var ákveðið að breyta áherslum í styrkveitingu og nota hluta framlagsins til að efla þjónustu fagteymis og fræðslu fyrir sérsamböndin og íþróttamenn þeirra. Þannig fara tæpar 64 milljónir beint í afreksstarfið en átta milljónir til eflingar fræðslu- og fagteymisvinnu. Þá er einnig ætlað að efla svokallaðar mælingar fyrir íþróttamenn, sem eru meðal annars ætlaðar til að fyrirbyggja meiðsli og ranga þjálfun. Þá var gerð sú breyting að fækka styrkjum til einstaklinga og auka framlag til sérsambanda, sem hafa því úr meiru að ráða til að fjármagna einstök verkefni fyrir sitt íþróttafólk. Örn Andrésson, formaður Afrekssjóðsins, segir að með þessu geti úthlutunin náð til fleiri íþróttamanna, sem ekki fá sérstaka einstaklingsstyrki. „Hvernig það verður útfært kemur ljós hjá hverju sérsambandi fyrir sig. Þetta er þó gert með unga og efnilega íþróttamenn í huga og er til dæmis ætlað til að efla fræðslu og ýmis áhersluatriði tengd því," sagði Örn og bætti við að það hefði verið vilji sjóðsins að gera enn róttækari breytingar. „Því miður gefur þessi hækkun ekki tilefni til þess," sagði hann. Í gær var einnig tilkynnt að Ólympíusamhjálpin myndi veita nítján milljónir í styrkveitingar þetta árið. Það er sambærilegur styrkur og verið hefur síðastliðin ár. Styrkþegar eru fyrst og fremst þeir sem stefna á þátttöku á Vetrarólympíuleikunum í Sochi eftir rúmt ár en fimm skíðamenn fá úthlutað úr sjóðnum nú, þó svo að enn fleiri stefni að því að ná lágmörkum fyrir leikana.A-styrkur – 200.000 kr. á mánuði Hverjir fá styrkinn: Þeir sem eiga raunhæfa möguleika á að komast í hóp átta bestu á heimsvísu í sinni grein. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttir Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund Jón Margeir Sverrisson, íþróttir fatlaðraB-styrkur – 120.000 kr. á mánuði Hverjir fá styrkinn: Þeir sem eiga raunhæfa möguleika á að komst í hóp 20 bestu á heimsvísu í sinni grein. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundC-styrkur – 60.000 kr. á mánuði Hverjir fá styrkinn: Þeir sem eiga raunhæfa möguleika á að komst í hóp 40 bestu á heimsvísu í sinni grein. Anton Sveinn McKee, sund Einar Daði Lárusson, frjálsíþróttir Helgi Sveinsson, íþróttir fatlaðra Kári Steinn Karlsson, frjálsíþróttir Óðinn Björn Þorsteinsson, frjálsíþróttir Þormóður Árni Jónsson, júdó Aðalheiður Rósa Harðardóttir, karate María Guðsteinsdóttir, kraftlyftingar Júlían J.K. Jóhannsson, kraftlyftingar
Innlendar Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Leik lokið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Sjá meira