Handbolti

Ingvar dæmir HM-leik með Færeyingi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ingvar Guðjónsson.
Ingvar Guðjónsson. Mynd/Óskar Andri
Íslenskir dómarar og eftirlitsmenn verða á faraldsfæri fyrstu tvær helgarinnar í janúar en þetta kemur fram á heimasíðu Handknattleikssambands Íslands.

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson munu dæma leik Sviss og Úkraínu í forkeppni HM en leikið verður í Sviss sunnudaginn 5.janúar.

Ingvar Guðjónsson, fyrrum félagi Jónasar, mun hinsvegar dæma leik Eistlands og Lettlands í Forkeppni HM ásamt félaga sínum frá Færeyjum, Eydun Samuelsen. Sá leikur verður í Eistlandi laugardaginn 11.janúar.

Guðjón L. Sigurðsson verður eftirlitsmaður á undankeppnisriðli hjá u-18 ára landsliðum karla en í riðlinum eru Danmörk, Frakkaland, Búlgaría og Bosnía. Leikið verður í Danmörku dagana 10.-12. janúar.

Ólafur Örn Haraldsson verður eftirlitsmaður á leik Hollands og Ísrael í forkeppni HM en leikið verður í Hollandi sunnudaginn 12.janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×