Óttast að mengun berist frá sorpi í sjó Svavar Hávarðsson skrifar 14. janúar 2014 07:00 Á Geirsnefi. Flestir þekkja Geirsnefið sem útivistarsvæði við Elliðaárvoga, en kannski síður að þeir standa á uppfyllingu sem að mestu leyti er tilkomin vegna sorpurðunar á sjöunda áratugnum. Nú óttast menn mengun frá því sem urðað var. Fréttablaðið/Heiða
Gert er ráð fyrir því að mengun leki í Elliðaárvog og innri hluta Sunda auk Grafarvogs frá spilliefnum í gömlum urðunarstöðum á svæðinu. Uppsöfnun mengunarefna í setlög og lífríki er talin hugsanleg, en lítið er vitað um ástand vistkerfisins á staðnum. Þetta kemur fram í Stöðuskýrslu fyrir vatnasvæði Íslands, sem Umhverfisstofnun (UMST) birti á fimmtudag.Gömul mengun - og nýJóhanna Björk Weisshappel, sérfræðingur á UMST og rithöfundur skýrslunnar, segir að þetta svæði sé eitt þriggja sem sérfræðingar stofnunarinnar hafa mestar áhyggjur af. Fréttablaðið fjallaði um mengun frá öðru þessara svæða á föstudag - gömlum urðunarstöðum hersins á Miðnesheiði sem menga grunnvatn. „Strandsjó á þessu svæði teljum við vera undir álagi, einkum vegna leka gamallar mengun, olíu og jafnvel þungmálma og spilliefna, frá gömlu öskuhaugunum í Gufunesi, sem var alsherjar urðunarstaður fyrir úrgang meðal annars úrgangsolíur, og frá Geirsnefinu sjálfu – landfyllingunni – þar sem bílum og öðrum úrgangi var fargað og því mögulega rafgeymum sem innihalda PCB olíu. Þetta svæði, sem við í raun teljum mögulega vera í hættu á að uppfylla ekki gott vistfræðilegt ástand, á eftir að skoða með tilliti til áhrifa á vistkerfið til að staðfesta það. Vegna þess gátum við ekki sagt að þetta svæði sé í hættu í stöðuskýrslunni, en þetta er það svæði á höfuðborgarsvæðinu sem við höfum mestar áhyggjur af - strandsjónum við Geirsnefið og útaf Gufunesi.“ Í skýrslunni greinir jafnframt frá fleiri stöðum í Reykjavík sem hafa beri í huga í sambandi við mengun á svæðinu; gamall urðurnarstaður á svæði frá Grandavegi og vestur um, auk gamallar sorpbrennslu og sorpeyðingarstöð undir Bryggjuhverfinu í Grafarvogi. Talin er meiri mengunarhætta út frá öllum þessum stöðum en nýjum urðunarstöðum, þar sem strangar reglur gilda nú um hvaða úrgang má urða.16 urðunarstaðirÁ vegum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur (HER) var gerð úttekt á gömlum urðunarstöðum í Reykjavík og birt skýrsla um rannsóknina árið 2006. Þar er bent á að beggja vegna urðunarstaðarins í Geirsnefi renna kvíslar Elliðaáa og nauðsyn þess að kanna hvort efnamengun sé að berast frá staðnum. Eins var mælt með rannsóknum í Gufunesi, en haustið 2012 kom í ljós olíumengun í sjó utan við gömlu Gufuneshaugana, sem talin er berast með regnvatnslögn sem liggur um haugana og þaðan í sjó. En hvað hefur verið gert síðan skýrslan var birt árið 2006?Kristín Lóa Ólafsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá HER, og annar höfundur skýrslunnar, segir að vöktun á svæðinu sé haldið úti frá árinu 2009, en það ár voru allar ár og vötn í landi Reykjavíkur vöktuð sérstaklega. Á næsta ári mun verða tekin ný vöktunarsería og þá verður lögð áhersla á vöktun í Geirsnefi og taka betur á málum í Gufunesi. Spurð hvort ekki sé æskilegt að hreinsa upp mengunina í Geirsnefi segir Kristín Lóa það mjög flókið og vart gerlegt í heild sinni. „Þetta verður ekki hreinsað upp svo glatt. Raunhæft er að fylgjast með svæðinu, meðal annars með því að taka þungmálmasýni og haga mótvægisaðgerðum eftir niðurstöðum þeirra. Hvað Gufunesið varðar vinnum við að endurbótum með Orkuveitu Reykjavíkur. Þar liggur regnvatnslögn í gegnum hauginn út í sjó sem þarf að skoða vel hvað varðar endurbætur,“ segir Kristín Lóa.Gufunes og Geirsnef - hætta á mengunGeirsnef. Farið var með bílhræ og annan úrgang frá bílapartasölunni Vöku og urðað í tippnum við Geirsnef. Tvennum sögum fer af því hvort búið væri að taka olíu og rafgeyma úr bílunum fyrir urðun. Í sumum tilfellum voru vélar, hásingar og bensíngeymar fjarlægðir. Þarna fór einnig grófur úrgangur úr Sorpeyðingarstöðinni við Stórhöfða ef ófært var á aðra urðunarstaði. Stærstur hluti bílhræja fór í þann hluta Geirsnefs sem er andspænis húsi Ingvars Helgasonar ehf. við Sævarhöfða. Hér leynist líklega mikið magn af spilliefnum, svo sem olíuefnum, rafgeymasýru, þungmálmum og ef til vill PCB [þrávirk lífræn efni].Gufunes. Hér er um að ræða stærsta urðunarstaðinn á höfuðborgarsvæðinu. Á þennan stað fór allur almennur úrgangur frá heimilum og fyrirtækjum, auk spilliefna, bílhræja, garðaúrgangs, brotajárns, timburs, byggingarúrgangs og úrgangs úr holræsabílum. Í fyrstu var ekki gerð nein tilraun til að aðskilja úrgang sem á haugana fór heldur var spilliefnum blandað saman við almennan úrgang. Eftir 1984 var farið að setja olíu í sér pytti og er nokkurn veginn vitað hvar þeir pyttir eru. Stærð þeirra og nákvæm staðsetning er þó óþekkt. Spilliefnamóttaka tók til starfa á höfuðborgarsvæðinu árið 1990 og minnkaði þá straumur spilliefna á haugana verulega. Eftir að SORPA tók til starfa á árinu 1991 var urðun úrgangs flutt að mestu leyti út á Álfsnes og endanlega gengið frá haugunum á árinu 1992.Heimild: Gamlir urðurnarstaðir í Reykjavík, 2006
Fréttaskýringar Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira