Formúla 1

Erfiðustu aðstæður sem ég hef lent í

Hamilton fylgist með í nótt.
Hamilton fylgist með í nótt. vísir/getty
Bretinn Lewis Hamilton fór vel af stað í Formúlunni í nótt og hann verður á ráspól í ástralska kappakstrinum. Aðstæður í tímatökunni voru mjög erfiðar.

"Þetta hefur verið áhugaverð helgi og tímatakan var erfið fyrir alla enda aðstæður ekki til fyrirmyndar. Ég er mjög ánægður með frammistöðu liðsins," sagði Hamilton sem er á ráspól í 32. skiptið á ferlinum.

Daniel Ricciardo náði nokkuð óvænt öðrum besta tímanum og liðsfélagi Hamilton, Nico Rosberg, er með þriðja besta tímann.

"Það er mun erfiðara að keyra þessa nýju bíla en þá sem voru áður. Sérstaklega í bleytu og ég var að prófa það í fyrsta skipti. Þetta voru erfiðustu aðstæður sem ég hef lent í. Ég keyrði alveg á mörkunum."






Tengdar fréttir

Tímataka í Ástralíu - Hamilton fljótastur

Fyrstu tímatöku tímabilsins er lokið. Mercedes menn koma best undan vetri og náðu fyrsta og þriðja sæti. Rok og rigning settu strik í reikninginn í Ástralíu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×