Halldóri Orra lýst sem "dfhsdkf kommentara sdfasdfa asdf as“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. apríl 2014 23:30 Halldór Orri Björnsson spilar með Falkenberg í Svíþjóð í sumar. Vísir/Valli
Sænska úrvalsdeildin í knattspyrnu hófst um síðustu helgi en þar leika níu Íslendingar með átta félögum. Einn þeirra er Stjörnumaðurinn Halldór Orri Björnsson sem gekk í raðir nýliða Falkenberg í síðasta mánuði en hann spilaði tólf mínútur í fyrsta leik liðsins sem tapaðist, 3-0, gegn meisturum Malmö. Sænska blaðið Expressen hitaði rækilega upp fyrir knattspyrnutímabilið og var með umsagnir um alla leikmenn deildarinnar. Gylfi Sigurðsson, íslenskur umboðsmaður sem býr í Svíþjóð, birti mynd á Twitter af umsögn blaðsins um nokkra leikmenn Falkenberg. Þar er DavidSvensson, fyrirliða Falkenberg, t.am. lýst sem ómetanlegum leikmanni fyrir liðið inn á miðsvæðinu. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Falkenberg aðeins 16 ára gamall og er kominn yfir 500 leiki fyrir félagið. Fyrir neðan hann í blaðinu er mynd af Halldóri Orri og réttilega bent á að hann sé 27 ára gamall, komi frá Stjörnunni og hafi skorað níu mörk á síðasta tímabili. Blaðamaðurinn hefur þó eitthvað beðið með að skrifa umsögnina um Halldór og þess í stað aðeins fyllt í kassann með orðinu „Kommentar“ og öðru kroti til áminningar um að þar eigi að koma umsögn. Hún gleymdist á endanum og er Halldóri því lýst á þessa leið: „Kommentar kommentar kommentar kommentar kommentar kommentar dfhsdkfkommentarasdfasdfa asdf as.“ Það er bara vonandi að Halldór Orri standi undir fögru orðunum og verði alveg „dfhsdkfkommentarasdfasdfa“ á tímabilinu.Umsögnin skemmtilega um Halldór Orra Björnsson.Mynd/Twitter-Gylfi SigurðssonExpressen gefur út risablað um tvær efstu karladeildirnar og úrvalsdeild kvenna fyrir hvert tímabil.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Fleiri fréttir Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Sjá meira