Ný rúmgóð íbúð á besta stað í bænum – næg bílastæði í næstu götu Kristinn Karl Brynjarsson skrifar 6. maí 2014 12:53 Öll þurfum við að komast leiðar okkar í leik og starfi. Borgarbúar kjósa daglega um mismunandi samgöngumáta í borginni. Niðurstaðan er nær undantekningalaust sú sama, ca. 80% vilja ferðast með fjölskyldubílnum, ca. 5 % á tveggja hjóla farartæki (reiðhjól, vespur og vélhjól) ca. 7% vilja ganga og ca. 8% taka strætó.) Það væri vissulega óskandi að fleiri hefðu tök á því að minnka notkun fjölskyldubílsins og nota aðra samgöngumáta. Ég efast líka ekki um að margir myndu gera svo, í það minnsta einhverja daga, hefðu þeir tök á slíku. Það má alveg færa rök fyrir því að það sé bæði nauðsynlegt og gott að þétta byggð í borginni. Það stytti vegalengdir fólks til og frá vinnu og annarra daglegra anna. Slík þétting má þó ekki verða með þeim hætti að þrengt sé að búsetugæðum þeirra er búa við fyrirhugaða þéttingareiti. Einnig er það svo að þétting byggðar og aðrar skipulagsæfingar mega ekki torvelda aðgengi fólks að þjónustufyrirtækjum. Þéttingu byggðar má ekki nota sem þvingunartæki til þess að fækka fjölskyldubílum. Líkt og núverandi borgarstjórnarmeirihluti stefnir óhikað á. Velflestar fjölskyldur í borginni eiga að minnsta kosti einn bíl. Fólk gerir það ekki að gamni sínu að fjárfesta í bifreið, sem kostað getur allt frá nokkur hundruð þúsund krónum upp í nokkrar milljónir auk árlegs rekstrarkostnaðar sem hleypur á nokkrum hundruðum þúsunda, ef engin þörf er á bifreið. Jafnvel þó einhverjir geti stundað sitt hversdaglega amstur án fjölskyldubílsins þá kjósa flestir að eiga einn slíkan. Tómstundir æði margra, skíði, hestamennska og golf fara fram rétt utan borgarinnar eða í útjaðri hennar. Margir eiga eða hafa aðgang að sumarbústöðum í nokkurra klukkustunda fjarlægð frá borginni. Að því ógleymdu að geta t.d. á fögrum sumardegi, tekið góðan rúnt eitthvað út fyrir borgina og notið fegurðar þessa lands sem við byggjum. Af þeim sökum er fjölskyldubíllinn ómissandi þáttur í lífi flestra borgarbúa, þó svo að margir geti notað aðra samgöngumáta, til ýmissa erinda hluta úr ári. Að ætla sér með þvingunum eða valdboði að fækka bifreiðum í Reykjavík, jafngildir í rauninni yfirlýsingu um að ætla að fækka íbúum í borginni. Það er því alveg ljóst að þétting byggðar með það að markmiði, meðvitað eða ekki, að fækka bílastæðum á hverja íbúð, mun tapa flestum þeim hagræðingarkostum sem þéttingu byggðar ætti að fylgja. Hverju heimili, hvort sem það sé í nýbyggingu eða í eldra húsnæði, þarf því að fylgja að minnsta kosti eitt bílastæði. Að ætla sér með þvingunum eða valdboði að fækka bifreiðum í Reykjavík, jafngildir í rauninni yfirlýsingu um að ætla að fækka íbúum í borginni. Það er því nokkuð ljóst ef að fólk upplifir það, þegar það fer og skoðar nýjar fasteignir á verðandi þéttingarreitum, að það fái ekki bílastæði við eignina og þá jafnvel ekki nema í næstu götu, að ekki auki það áhuga þess á eigninni. Það fólk mun því að öllum líkindum flytja í eitthvert nágrannasveitarfélagið þar sem nægt framboð er af íbúðum með bílastæði. Hið sama mun svo gerast ef þrengt er að bílaumferð og bílastæðum fækkað í götum þar sem þjónustufyrirtæki reka starfsemi sína. Ef að fólk á eftitt með að finna bílastæði við þessi fyrirtæki þá hættir fólk að skipta við þau. Fyrirtækin munu því einnig flytja starfsemi sína í þau sveitarfélög alls staðar í kringum borgina, þar sem aðgengi viðskiptavina þeirra er tryggt með auðveldri aðkomu og nægum bílastæðum. Sjálfstæðisflokkurinn mun, komist hann til valda í borginni, sjá til þess að aðalskipulagið verði tekið upp með það fyrir augum að efla öll hverfi borgarinnar. Líka úthverfin. Klára þau hverfi sem byrjað hefur verið á, eins og Úlfarsárdal. Endurskoða flesta ef ekki alla þéttingarreiti í aðalskipulaginu með það fyrir augum, að búsetugæði þeirra sem nú þegar búa við þéttingarreitina skerðist ekki. Einnig þarf að hafa í huga að það umhverfi sem bíði þeirra er flytji í nýtt húsnæði á þéttingareitum sé aðlaðandi og vel fari um alla þá sem þar búa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Forsetakosningar 2016 Skoðun Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar