Formúla 1

Hamilton nánast fullkominn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lífið leikur við Lewis Hamilton þessa dagana.
Lífið leikur við Lewis Hamilton þessa dagana. Vísir/Getty
Lewis Hamilton, ökuþór Mercedes-liðsins í Formúlu 1, hefur byrjað tímabilið alveg frábærlega en eftir að klára ekki fyrstu keppnina í Ástralíu vann hann næstu þrjár í Malasíu, Barein og Kína.

„Enginn ökumaður verður heimsmeistari með slöku liði en það sem þú getur gert er að sýna hversu flotta sigra þú getur unnið,“ segir NigelMansell, fyrrverandi heimsmeistari í Formúlu 1, um samlanda sinn, Hamilton.

Mercedes-bíllinn er sá langbesti í Formúlu 1 í ár eftir róttækar reglubreytingar og er Hamilton að nýta sér gæði bílsins til hins ítrasta. Hann hefur þrívegis náð ráspól og unnið þrjár keppnir sem fyrr segir.

Eftir að verða heimsmeistari árið 2008 hefur Hamilton átt erfitt uppdráttar en hann lítur nú betur út en nokkru sinni fyrr og er sá maður sem aðrir þurfa að sigra ætli þeir að verða meistarar.

„Hann er nánast búinn að vera fullkominn. Bara algjörlega frábær. Hann fær fullkomið frelsi til að sleppa fram af sér beislinu. Hann á bara eftir að fá meira sjálfstraust eftir því sem hann vinnur fleiri keppni,“ segir Nigel Mansell.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×