Skoðun

Hvers vegna stjórnmálaflokkur?

Gísli Halldór Halldórsson skrifar

Ég hef komist að því í gegnum tíðina að fólk leggur mjög ólíka merkingu í þátttöku í stjórnmálaflokkum. Dæmigerð skilgreining á stjórnmálaflokkum er að þeir séu samtök fólks sem vinnur að sameiginlegum markmiðum með því að ná pólitískum áhrifum og beita þeim.

Fólk er í stjórnmálaflokkum af ólíkum ástæðum. Sumir vilja bæta samfélagið, aðrir vilja berjast fyrir sínum prívat hagsmunum, einhverjir telja flokksvistina ættarskyldu sína – nánast arfgenga,  svo eru einhverjir sem vilja bara vera í liðinu – svona eins og í fótboltanum, en er alveg sama um stjórnmál.

Sjálfur lít ég á þátttöku mína í stjórnmálaflokki sem vettvang til að vinna að betra samfélagi eftir ákveðnum grundvallar hugsjónum. Flokkar geta auðvitað haft önnur markmið en betra samfélag. Þar að auki lítur hver sínum augum á silfrið og því getur fólk upplifað sama stjórnmálaflokkinn og markmið hans með mjög ólíkum hætti.

Fóstbræðralagið

Einhverjir virðast líta á flokka sem einskonar fóstbræðralag, eins og blóði sé blandað og flokkinn skuli verja út í rauðan dauðann – taka þá jafnvel ekkert tillit til þess þó flokkurinn vinni gegn félögum sínum eða samfélagi. Fyrir þessu fólki er það jafnvel heilög skylda að vera í flokknum, kjósa hann – alveg sama hvað hann býður upp á. Ég hef stundum á tilfinningunni að þeir sem reyna að blása öðrum þessi blóðbönd í brjóst beri enga sérstaka virðingu fyrir því að flokksmenn allir komi að stefnumótun flokksins. Áhrifamesta fólkið í stefnumótun stjórnmálaflokka er ekkert endilega allt að hugsa um þetta „fóstbræðralag“. Það getur þess vegna verið hugsa um hugðarefni sín eða hagsmuni, án tillits til þess hvort flokkurinn standi sterkari eða veikari eftir.

Maður hefur heyrt um að fólk hafi verið skráð í flokk án sinnar vitundar, þó ég telji það heyra til mikilla undantekninga og kannski hefur það ekki gerst í tugi ára. Sjálfur hef ég hinsvegar fylgst með því hvernig fólki er smalað inn í flokka. „Ekkert mál. Skráir þig bara úr flokknum eftir prófkjör – bara eftir helgina.“ Hvað verður um fóstbræðralagið þá? Hve dýr eru böndin?

Áhrifaöfl í flokkum

Útgerðarmenn hafa margir verið í mjög sérstakri stöðu vegna þess hve óheppilegt og misheppnað kvótakerfi er í fiskveiðum í landinu. Útgerðarmenn eru ekki verri eða betri en annað fólk, þeir eru mikilvægur þáttur í þeim þráðum sem landið okkar er ofið úr, atvinnulífi og samfélagi.

Margir útgerðarmenn hafa þó að mínu mati misnotað Sjálfstæðisflokkinn í þágu útgerðanna. Það fólk hefur nánast farið með flokkinn eins og gólftusku, skemmt flokkinn. Þeir halda sumir að ég sé að eyðileggja partýið, en það er akkúrat þveröfugt.

Ævin í stjórnmálum

Ég þekki ekki mína framtíð í stjórnmálum og stjórnmálaflokkum, það verður hinsvegar aldrei þannig að ég telji mig æviráðinn í stjórnmálaflokk. Ef flokkur hefur á endanum ekki þau samfélagslegu markmið sem ég tel þörf á að vinna að þá hlýt ég að snúa mér annað.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×