Þrjú íslensk mörk í Stafangri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. júní 2014 20:19 Björn Daníel var á skotskónum í kvöld. Vísir/Valli
Jón Daði Böðvarsson, Björn Daníel Sverrisson og Steinþór Freyr Þorsteinsson voru allir á skotskónum í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Viking vann þá öruggan 4-1 sigur á Stabæk en auk þeirra voru Sverrir Ingi Ingason og Indriði Sigurðsson í byrjunarliði fyrrnefnda liðsins. Steinþór Freyr klikkaði reyndar á vítaspyrnu á 82. mínútu leiksins en bætti fyrir það fjórum mínútum síðar. Mörk Jón Daða og Björns Daníels komu einnig í síðari hálfleik. Guðmundur Þórarinsson var svo í liði Sarpsborg sem tapaði 4-0 fyrir Haugesund. Þórarinn Ingi Valdimarsson kom inn á sem varamaður í hálfleik í liði Sarpsborgar. Hannes Þór Halldórsson fékk svo á sig þrjú mörk þegar að Sandnes Ulf tapaði fyrir Álasundi, 3-0 og þá var Pálmi Rafn Pálmason ekki í hópnum hjá Lilleström sem vann Strömsgodset, 3-0. Viðar Örn Kjartansson náði aldrei þessu jafnt ekki að skora fyrir Vålerenga sem tapaði fyrir Sogndal, 2-0. Hjörtur Logi Valgarðsson spilaði allan leikinn fyrir síðarnefnda liðið. Þá vann Rosenborg 4-2 sigur á Start en þeir Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson spiluðu báðir allan leikinn fyrir Start. Alexander Söderlund, fyrrum leikmaður FH, skoraði tvö mörk fyrir Rosenborg. Molde gerði 1-1 jafntefli við Bodo/Glimt en Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í leikmannahópi Molde. Að síðustu tapaði Brann fyrir Odd, 1-0. Birkir Már Sævarsson var að venju í byrjunarliði Brann. Molde er á toppnum með 30 stig en Strömsgodset og Odd koma næst með 24 stig hvort.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Sjá meira