Berti Vogts hættur með landslið Aserbaídsjan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. október 2014 10:30 Berti Vogts fagnar hér með skoska landsliðinu á Laugardalsvellinum árið 2002. Vísir/Getty
Berti Vogts, fyrrum landsliðsþjálfari Skotlands og Þýskalands, er nú einnig orðinn fyrrum landsliðsþjálfari Aserbaídsjan. Vogts er búinn að segja starfi sínu lausu en hann var landsliðsþjálfari Aserbaídsjan í sex ár eða frá árinu 2008. „Vogts sagði okkur því miður að hann sæi ekki að framtíð sín væri með landsliði Aserbaídsjan," sagði í tilkynningu á heimasíðu fótboltasambandsins. Liðið tapaði 33 af 70 leikjum sínum undir stjórn Þjóðverjans en fagnaði sigri í 15 leikjum. Berti Vogts er 67 ára gamall en lék á sínum tíma 96 landsleiki fyrir Vestur-Þýskaland og varð heimsmeistari 1974 og Evrópumeistari 1972. Hann hefur nú stjórnað fimm landsliðum í 230 leikjum sem þjálfari. Síðasti leikur Berti Vogts með Aserbaídsjan var 6-0 tap á móti Króatíu í byrjun vikunnar en liðið hefur tapað þremur fyrstu leikjum sínum í undankeppni EM 2016 fyrir Búlgaríu (1-2), Ítalíu (1-2) og Króatíu (0-6). Berti Vogts skilur við landslið Aserbaídsjan í 95. sæti á Styrkleikalista FIFA en liðið var komið upp í 73. sætið í júlí.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Ísak Snær skoraði í svekkjandi jafntefli Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Sjá meira